Deila á Facebook
« Kvennafrídagur hvað? | Aðalsíða | Skítakuldi! »

Dagurinn í dag og gærkvöldið
Skrifað miðvikud. 26. október 2005 - 02:57
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Svei mér þá. Ég fór í gær niður í bæ með vinum mínum. Ég ætlaði að fá mér einn bjór en endaði með að drekka 6 stykki! Fuss og svei. Eyddi öllum peningnum mínum í bjór og það á mánudegi! Það er ekki í lagi með mig.

Eftir gærkvöldið, fór ég heim blindfullur og fór beint að sofa. Vaknaði þunnur næsta dag og fór í skólann. Eftir skólann, fór ég í kór. Alveg hvað það er endalaust gaman í kór. Ég var búinn í kór kl 6, fór ég þá heim og beið til 8 þangað til mamma var búin að vinna. Hún er að kenna póstulínsmálun og er hárgreiðslumeistari. Eftir að hún var búin að vinna, bauð hún mér á KFC og fékk ég mér BBQ Zinger Tower.

Svo seinna um kvöldið fór ég í bíó með vinum mínum á myndina Doom, sem var búin til upprunalega út frá tölvuleiknum Doom. Hún var bara mjög fín. Virkilega flott að sum atriðin eru tekin upp í "first person view". Kemur mjög skemmtilega út.

Æðislegar fréttir! Nýi bíllinn hennar mömmu er loksins kominn til landsins. Haldiði ekki að mamma gamla hafi ekki bara splæst í glænýja Mözdu RX-8 Geðveikur bíll! Þá loksins hættir hún að rembast við að keyra þetta Ford F250 ferlíki. Við eigum tvo RISASTÓRA bíla! Pabbi á Ford Econoline og mamma á Ford F250.

Allavega, ég ætla að skella mér í heita sturtu (já, það er kalt úti) og svo bara fara að sofa. Þarf að vakna kl 11:20 í skólann á morgun.
Var að enda við að klára að gera þessa blessuðu heimasíðu töflulausa. Já, núna er hún gerð með XHTML 1.0 Strict, DIV layerum, CSS og PHP. Virkilega gaman að fikta í þessu.

Það styttist í helgina. Spurning hvað maður taki sér fyrir hendur þá. Ta ta!




Athugasemdir ():