Deila á Facebook
« "Annáll" fyrir 2005 | Aðalsíða | Gærkvöldið - Staffapartý hjá Stulla »

Ritstjórar DV segja upp - Það var mikið!
Skrifað föstud. 13. janúar 2006 - 14:40
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jú jú, þeir Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjórar DV, hafa sagt upp störfum hjá DV. Ég segi bara það var mikið og tek ég ofan fyrir þeim að hafa gert það eina rétta í þessari stöðu. Vonandi var þetta mínu opinbera bréfi eitthvað að þakka.

Ritstjóraskipti á DV

Ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, hafa sagt upp störfum. Í fréttatilkynningu sem þeir hafa sent frá sér segir að: „DV hefur lent í ófriði í umræðum í þjóðfélaginu undanfarna daga. Nauðsynlegt er að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá öllu því dugandi starfsfólki, sem unnið hefur á ýmsum sviðum þess. Til þess að svo megi verða höfum við sagt af okkur sem ritstjórar blaðsins frá og með deginum í dag."

Í þeirra stað hafa þeir Björgvin Guðmundsson og Páll Baldvin Baldvinsson verið ráðnir ritstjórar DV frá og með deginum í dag.

Í tilkynningu frá 365 miðlum kemur fram að Björgvin hóf störf á Fréttablaðinu þegar það var stofnað vorið 2001. Í upphafi árs 2003 réði hann sig á ritstjórn Morgunblaðsins þar til hann snéri aftur og tók þátt í stofnun Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins um viðskipti, í apríl 2005.

Björgvin var formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, í tvö ár og sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hann hefur stundað nám í hagfræði við Háskóla Íslands.

Páll Baldvin Baldvinsson hóf störf á DV í ágúst 2004 og hefur gegnt starfi menningarritstjóra blaðsins.

Hann var innkaupastjóri Stöðvar 2 1987-1990, dagskrárstjóri 1995-2001 og listrænn ráðunautur Leikfélags Reykjavíkur 1991-1995. Páll Baldvin var ritstjóri Stúdentablaðsins 1975-1977 og hefur fjallað um menningarmál í fjölmiðlum frá 1970 á Tímanum, Þjóðviljanum og DV, RÚV, Stöð 2 og NFS.

Páll Baldvin er menntaður í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og leikhúsfræði frá Goldsmith College í London.


Tekið af mbl.is

Vonandi standa þeir Björgvin og Páll sig betur en fyrrverandi ritstjórar DV. Vonandi munu þessi ritstjóraskipti hafa áhrif á stefnu DV.




Athugasemdir ():