Deila á Facebook
« Ritstjórar DV segja upp - Það var mikið! | Aðalsíða | Nafnabreyting - Vitleysa? »

Gærkvöldið - Staffapartý hjá Stulla
Skrifað laugard. 14. janúar 2006 - 14:09
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Gærkvöldið var mjög skemmtilegt, þó ég sé að deyja úr þynnku núna.

Kvöldið byrjaði á því að klukkan hálf 8 fór ég í staffapartý fyrir Bónus Video í Spönginni hjá Stulla, sem er rekstrarstjórinn okkar. Við vorum búin að safna flöskum í nokkra mánuði svo við gætum keypt áfengi fyrir peninginn. Við vorum komin með flöskur upp á 10.000 kr. þannig við gátum keypt einhvern lítinn sætan bjórkút.

Þegar við vorum búin að vera í nokkra klukkutíma hjá Stulla, byrjuðu allir að vera geðveikt fullir. Fólk var farið að fara á trúnó og svona þannig ég ákvað að beila. Eygló ætlaði að koma með mér en hún var búin að drekka svo mikið að hún sleppti því og skutluðum við henni bara heim. Það er gott að eiga góðan pabba sem er til í að skutla manni seint um nótt. Takk pabbi.

Við skutluðum Eygló og Fannari, kærastanum hennar bara heim til hans í Kópavogi. Eftir það skutlaði pabbi mér til Davíðs í Litlagerði. Guðrún var þar ásamt Töru. Ég fór inn og þar voru þau þrjú, Guðrún, Tara og Davíð. Það var rosa fjör þarna eða... ekki. Við stoppuðum ekkert rosalega lengi þarna.
Kamil hringdi og var Danni með honum. Ég bauð þeim að kíkja og gerðu þeir það. Svo bað ég Kamil um að skutla okkur niður í bæ þar sem við ætluðum að hitta Grétar og Ingvar.

Hann skutlaði okkur til Ingvars og hélt partýið áfram þar. Svo eftir það, ákváðum við að fara að fá okkur að borða og skelltum við okkur á Hlöllavagninn niðri í miðbæ. Vááá, himneskur matur!
Eftir það skutluðum við Töru bara heim til sín og ég fór bara heim til Guggu minnar. Svo fóru Grétar og Ingvar aftur niður í bæ að djamma.

Alveg ótrúlegt, í morgun vaknaði ég með Guggu, út af því að hún var að fara í vinnuna kl hálf 12. Ég bað hana um að skutla mér heim og ég get svo svarið það, ég var ennþá fullur! Hún skutlar mér svo heim og ég spyr hana hvort hún vilji að ég kaupi bjór fyrir sig og þiggur hún það. Ég fer og skafa 1m þykkan snjóinn af bílnum mínum og fer og tek bensín á Atlantsolíu á Húsgagnahallarplaninu. Svo fer ég í ríkið og kaupi kippu af Tuborg í dós handa Guggu minni.

Eftir það kem ég bara heim og hér er ég niður kominn. Orðinn mjög þunnur og er að spá í að leggja mig í nokkra klukkutíma, þar sem við sváfum mjög lítið.

En ég tók nokkrar myndir í gærkveldi. Þó ég hætti alltaf að taka myndir þegar nær dregur á morguninn. Kannski vegna þess að ég er orðinn fullur og gleymi gjörsamlega að taka myndir. En þær eru allavega nokkrar og er hægt að skoða þær hérna!

En stefnan í kvöld er að fara í partý heima hjá Ingvari, þar sem Helgi og Ómar eru að halda upp á afmælið sitt saman. Æjj, en sætt. Ég á kippu af bjór og er bara góður á því. Ég vona svo innilega að Gugga komi með mér, út af því að ég fer að sakna hennar svo mikið þegar hún er ekki með mér. Það er ekki eðlilegt.

En já, segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():