Gærkvöldið - Afmæli hjá Helga og Ómari
Skrifað mánud. 16. janúar 2006 - 01:10Jahá, þetta var nú meira fjörið þetta afmælispartý Helga og Ómars sem var haldið heima hjá Ingvari.
Í gærkveldi fór ég í afmælispartý hjá Helga og Ómari. Þetta var mjög gaman, fyrir utan það hvað ég endaði með að verða fullur.
Gugga ætlaði að koma með mér til Ingvars en hún hætti við á síðustu stundu og sagðist ætla bara að vera edrú þetta kvöld. Þó að ég hefði viljað hafa hana hjá mér, þá var þetta ekkert mál, ég og Grétar fórum bara.
Jökull hringdi í mig í afmælinu og ég bauð honum í partýið. Eftir afmælið fórum við niður í bæ og fórum að djamma. Við vorum bara að flakka á milli staða, aðallega á milli Gauksins, Glaumbars, Pravda og eitthvað.
Þegar við vorum að fara heim hitti ég Hlyn félaga minn, þar sem hann var að fara að byrja einhver slagsmál. Ég dró hann bara í burtu til þess að hann myndi ekki lenda í einhverju veseni, þar sem slagsmál leysa fæsta hluti og hann var einn á móti einhverjum nokkrum gaurum. Þannig þetta hefði bara endað illa.
Þegar Gugga sagði mér að hún ætlaði að vera edrú um kvöldið, bað ég hana um að hitta mig um kvöldið, en eitthvað fór úrskeiðis, þar sem klukkan 1, hringdi ég og sendi henni sms eins og brjálæðingur en hún svaraði mér ekkert. Þá var hún víst sofnuð. En í lok kvöldsins fór ég heim til hennar og vakti hana með því að banka á gluggann hennar svona milljón sinnum. Á endanum vaknaði hún loksins en hún var ekkert sérlega ánægð með heimsókn mína, en hleypti mér samt sem áður inn og fórum við að sofa.
Ástæðan fyrir því að ég fór til hennar, var sú að ég saknaði hennar og er bannað að sakna kærustunnar sinnar?
Já, mér finnst of langur tími að hittast ekki í heilan dag þegar maður er í sambandi. Ég saknaði hennar! 
Ég vil allavega þakka öllum kærlega fyrir þetta kvöld. Þetta var of gaman! Við verðum að endurtaka þetta fljótt aftur!
En núna í kvöld var ég bara að vinna. Ég þarf að finna mér einhvern sem nennir að koma með mér í bíó á Hostel, þar sem á meðan ég var að vinna, fóru vinir mínir í bíó á hana. Ég er svo mikill vælukjói en er það til of mikils ætlast að vilja fara með kærustunni sinni á mynd sem ég er búinn að biðja hana áður um að koma með mér á. Æji ég er fífl og geri mál út af öllu! En ég var að vinna. Það nær bara ekkert lengra.
Myndirnar úr afmælinu er að finna hér.
Segjum þetta gott í bili.

Athugasemdir (