Utanlandsferð ofl. - Aftur?
Skrifað miðvikud. 18. janúar 2006 - 21:51Þar sem ég er í harðri samkeppni við ákveðna aðila, ákvað ég að henda einhverju inn.
Í gær var bara tekið það rólega. Ég, Gugga mín, Grétar og Jökull skruppum á kaffihús. Þar var bara drukkinn einn bjór, spilað, teflt (ég tapaði víst
) og slappað af. Ég og Gugga mín áttum eins mánaðar afmæli í gær. 
Svo eftir kaffihúsaslapperíið, komum við, við á Subway á Ártúni og ég fékk mér bát mánaðarins, sem var víst skinkubátur. Ég fékk brauð sem var örugglega frá því í síðustu viku og svo bað ég um BBQ sósu og hann hellti smávegis. Svo bað ég um smá meira og þá kreisti hann túpuna svo mikið að ég get svo svarið það að ég heyrði eitthvað áreynsluhljóð í honum. Svo þegar ég fór að borða bátinn, hóstaði ég eins og vitfirringur, þar sem það var allt of mikið af BBQ sósu.
Hvað er að fólki? Þegar afgreiðslufólk setur litla sósu og kúnninn biður um meira, á afgreiðslumaðurinn bara að setja jafn mikið aftur.
Svo fórum við Gugga bara heim til mín. Svo sofnuðum við (eða bara ég?
) í faðmi hvors annars.
Og vöknuðum svo klukkan 2 og þá skutlaði ég Guggu heim til sín. Svo kom ég heim kl hálf 3 og þá fór ég að sms'ast eitthvað við hana og svo fór ég bara að sofa.
Gugga mín vakti víst til 4 og var að spjalla við eitthvað lið á MSN.
Ég og hún þurftum bæði að vakna kl 10. Hún þurfti að fara að passa og ég þurfti að fara í skólann.
Svo núna í dag var nú ekki gert neitt annað en farið í skólann og farið með Grétari að panta ferðina út til Tenerife hjá Kanarí. Er ég bara alltaf úti?!
Allavega ferðin kostar 55.400 kr. með flugi og gistingu. Ég þurfti að borga 28.500 í staðfestingargjald í dag en fékk að fresta því þangað til um mánaðarmótin, þar sem ég er svo mikill sjarmör. Það hefði ekki verið séns að fá það í gegn ef það hefði verið kall sem afgreiddi mig! 
En allavega við stóri vinahópurinn erum að fara út og eru það sirka 20 manns sem eru að fara saman.
Það er allavega ég, Gugga mín, Grétar, Jökull, Beta, Helgi, Herdís, Palli og helling af öðru fólki sem ég er of þreyttur til að telja upp. 
Þessi staður er geðveiki! Myndir hér fyrir neðan af staðnum sem við verðum á!

Núna er ég bara að fara að skila spólum sem ég tók um daginn. Ætli maður skelli sér svo ekki bara til Guggu að riðlast á glugganum hennar? Mig minnir að það hafi verið helvíti skemmtilegt.
Segjum það í bili.

Athugasemdir (