Deila á Facebook
« Utanlandsferð ofl. - Aftur? | Aðalsíða | Laugardagurinn mikli »

Gærdagurinn - snjóbretti og djamm
Skrifað laugard. 21. janúar 2006 - 23:33
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja ætli maður verði ekki að skrifa um gærkvöldið.

Ég byrjaði á því að fara í skólann til kl 1. Svo fór ég bara heim og fékk mér að borða og svona.

Svo seinna um daginn hringir Jökull í mig og spyr mig hvað ég er að fara að gera. Ég segi honum að ég hafi engin plön og þá biður hann mig um að koma á snjóbretti í Bláfjöllum. Ég segi auðvitað já, þar sem það er ekkert skemmtilegra en að fara á bretti.
Ég fer og tek dótið saman og klæði mig og svo kemur hann og sækir mig. Við förum fyrst í ríkið til að kaupa bjór fyrir kvöldið og svo skellum við okkur upp í Bláfjöll. Þegar við komum þangað, förum við og kaupum miða. 1500 kr. fyrir nokkura klst gaman. Er það nú okur! Við látum okkur nú hafa það og borgum. Svo skellum við okkur í barnabrekkuna til að byrja með. Maður verður að hita upp. Svo eftir eina bunu þar, förum við í Kóngsgilið. Djöfull var það gaman! Það var ekki búið að opna aðal stólalyftuna þegar við komum, en hún opnaði aðeins seinna. Fyrst fórum við bara í lélegu stólana, svo færðum við okkur í aðal stólana þegar þeir opnuðu. Það mætti alveg bæta við svona vindhlíf á þá stóla, þar sem það var ógeðslega hvasst á leiðinni upp.
Svo eftir nokkra klst kemur Óli og við höldum áfram að renna okkur. Djöfull var þetta gaman! Ég fer pottþétt oftar! Ég er orðinn helvíti góður á bretti og er byrjaður að geta snúið mér í 360° hring á mikilli ferð. Enda var ég eiginlega bara að því í gær! Ég fór í einhverja 10 hringi niður eina brekku. Hahaha! Ekki skrítið að ég hafi verið svona ringlaður! Svo fórum við bara heim.

Um kvöldið kom ég bara heim og heyrði í Guggu minni, og þá var hún bara að þvælast eitthvað. Svo fór hún til Jökuls og Betu og ég fór þangað eftir að horfa á einn þátt í sjónvarpinu.
Það var mjög rólegt þar en drukkum við bara þar og svo fóru ég og Gugga mín bara til mín að lúlla.

Svo núna í morgun vöknuðum við svolítið seint. Gugga mín vaknaði á undan mér og segir að ég hafi ekki getað drullað mér á lappir. Núna þegar ég hugsa út í það þá var svolítið erfitt fyrir mig að koma mér á lappir. Það er líka best að kúra!
Svo þegar ég gat komið mér á lappir þá fórum við alla leið í Hveragerði að heilsa upp á pabba Guggu minnar sem heitir Sigmundur og kona hans María. Það var mjög gaman og svo fórum við í Mosó og náðum í bróðir Guggu og skutluðum honum og frænda hans í bíó.
Svo fórum við á Pizza Hut og fengum okkur að borða. Svo var Gugga að fara rétt áðan að fara eitthvað með Töru vinkonu sinni.

Planið í kvöld er óvitað. Mér sýnist ekkert ætla að verða út úr þessu kvöldi, þar sem allir vinir mínir eru uppteknir og að gera eitthvað merkilegra en að djamma.

Segjum það í bili.




Athugasemdir ():