Deila á Facebook
« Gærdagurinn - snjóbretti og djamm | Aðalsíða | American Psycho »

Laugardagurinn mikli
Skrifað mánud. 23. janúar 2006 - 21:28
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Látum okkur nú sjá. Hvernig byrjaði þetta aftur?

Ég var bara með Guggu minni á laugardeginum. Svo skruppum við á Pizza Hut og fengum okkur að borða. Svo fórum við í Bónus Video og fengum okkur ís. Svo fórum við bara heim og borðuðum og slöppuðum af. Svo seinna hringdi Tara vinkona Guggu í hana og bað hana um að koma með sér að skutlast eitthvað. Hún fór með henni og skildi mig bara einan eftir.
En stuttu seinna kom Grétar og við fórum svo og náðum í Jökul og fórum svo til Ingvars.

Ég verð svo ruglaður þegar ég er fullur að ég manaði alla í sjómann og hah... ég vann alla nema Grétar! En ég er sáttur. Ég fór í sjómann við 5 gaura og vann alla nema einn. Massssssssssssssi!

En allavega, svo fórum við bara niður í bæ að djamma. Ég skil ekki hvað er að mér. Ég get ekki verið lengur en nokkrar klst í burtu frá kærustunni minni, þá fæ ég bara svona söknunartilfinningu sem er engu lík. Þannig ég hringdi í hana og bað hana um að hitta mig þegar Grétar gæti skutlað mér heim. Hún sagði mér bara að hringja í sig þegar ég væri á leiðinni. Ég gat ekki beðið, þar sem Grétar var ekkert á leiðinni heim, þannig ég hringdi í helling af fólki til að reyna að redda fari til Guggu minnar, en enginn gat skutlað mér. Svo hringdi ég í bestustu frænku í heimi, hana Maju skvís. Hún gat reddað frænda sínum.

Svo á leiðinni heim hringdi ég milljón sinnum í Guggu en hún svaraði ekki, þannig ég ákvað að fara heim til Töru vinkonu hennar (hún var þar). Já já, þetta var ekkert sérstaklega gáfuleg ákvörðun en söknuðurinn var það mikill. Svo þegar við komum heim til Töru, þá voru hvorki Gugga né Tara búnar að svara símunum sínum. Ég ákvað að fara út og pissa og fá mér sígó og ná aðeins áttum. Ég labbaði upp að húsinu hennar Töru og leit inn um gluggana og áður en ég veit af er mamma hennar Töru komin í útidyrahurðina. Ég spyr hana bara kurteisislega hvort að Guðrún sé hérna. Hún hleypir mér inn og segir mér að fara niður til þeirra. Ég fer niður og þar liggja þær báðar uppi í rúmi. Ég hvíslaði létt í eyrað á Guggu nokkrum sinnum: "hæ elskan mín... þetta er gaui, ég er kominn" en hún rumskaði ekki þannig stuttu seinna ákvað ég bara að fara einn heim. Skemmtilegt þetta.

Svo á sunnudeginum var bara tekið það rólega og ekkert gert. Bara legið í þynnku heima hjá sér bölvandi helginni.

Ég hef nú ekkert fleira að segja í bili en ég mun, eins og ávallt, halda áfram að skrifa vitleysu og þvælu hingað inn.

Lag dagsins:
David Gray - Sail Away




Athugasemdir ():