Deila á Facebook
« Laugardagurinn mikli | Aðalsíða | Nýr vírus í umferð! »

American Psycho
Skrifað miðvikud. 25. janúar 2006 - 20:30
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég og sálfræðibekkurinn minn fengum það verkefni um daginn að vinna kvikmyndaverkefni. Þ.e.a.s. leigja mynd, horfa á hana og tengja svo myndina og karakterana í myndinni við Sálfræðina og skrifa svo ritgerð um persónulegt álit okkar.

Ég tók allavega myndina American Psycho áðan. Mér finnst hún persónulega vera svolítið mikið rugl, þar sem maður fattar ekki alveg söguna á bak við karakterinn og hvað orsaki hegðun Patrick Batemans.
Hún fjallar allavega um mann sem er félagsblindingi (sociopath) og er haldinn fullkomnunaráráttu, öfundsýki, þráhyggju og siðblindu. Hann er einnig haldinn röskun sem ég myndi þýða sem Persónuleika Sjálfshrifningarröskun (Narcissistic Personality Disorder). Hann á allt; hann er í góðri vinnu, hann er moldríkur, hann á kærustu, flotta íbúð, er bráðmyndarlegur og í mjög góðu líkamlegu formi. Honum finnst hann einfaldlega geta komist upp með allt. Hann álítur sig vera einhverskonar guð þar sem hann kemst nokkrum sinnum upp með að drepa saklaust fólk, þess vegna leitar hann sér að spennu í því að reyna að leika guð og drepa fólk. Hann getur samt ekki gert sér augljóslega grein fyrir því hvort hann hafi í raun og veru drepið allar þessar manneskjur eða hvort að þetta sé geðröskun sem er að stíga upp á yfirborðið.

Ég mæli alveg með þessari mynd ef þið eruð að leita ykkur að einhverjum sálfræðitrylli.

En núna er ég bara að reyna að skrifa þessa blessuðu ritgerð. En það gengur eitthvað erfiðlega, þar sem ég á að skrifa 1-2 vélritaðar blaðsíður og það eina sem ég hef til að skrifa, er þetta hér fyrir ofan! En vonandi hverfur þessi ritstífla bráðlega, þar sem ég á að skila þessari ritgerð/skýrslu á föstudaginn, og ég er í skólanum til 6 á morgun og svo fer ég beint að vinna, þannig ég get ekki klárað þetta á morgun. En þetta kemur vonandi.

Í kvöld er eitthvað nýársball hjá Borgó, sem er haldið á NASA. Er ekki aðeins of seint að halda upp á nýja árið núna? Eða er það bara ég? Allavega finnst mér það svolítið seint. En ég keypti allavega ekki miða á ballið, þar sem ég ákvað að vera duglegur og vinna þetta kvikmyndaverkefni samviskusamlega.

Í dag í Sálfræði, skiluðum við blaði með nokkrum spurningum, þar sem spurt var um fræðimenn innan Sálfræðinnar. Ef maður fær 1 eða færri villur á þessu "prófi", þá fær maður 1 heilan viðbættan við einkunnina í næsta skyndiprófi. Ég vonast til að fá það, þar sem ég var mjög lengi að gera þetta.

Það virðist allavega vera að ég sé ekki haldinn ritstíflu hérna á blogginu. Segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():