Deila á Facebook
« Dagurinn í dag og gærkvöldið | Aðalsíða | Smá viðbætur ofl. »

Skítakuldi!
Skrifað miðvikud. 26. október 2005 - 19:29
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, það er sko heldur betur kominn vetur. Ég fór kl 5 um morguninn að sofa í gær, vaknaði svo þremur tímum seinna, kl 8, til að fara og láta skipta um rafgeymi í bílnum mínum.
Þið getið varla ímyndað ykkur hvað það er leiðinlegt að vakna 10 min áður en skólinn byrjar og dagurinn byrjar á því að bíllinn er rafmagnslaus og koma of seint í skólann út af því! Það eyðileggur algjörlega daginn fyrir manni.

Ég held að mér hafi aldrei á ævinni verið svona kalt. Kannski er það bara út af því að ég fór svona seint að sofa og var svona þreyttur. Það er staðreynd að þegar maður er þreyttur, þá er manni kalt. Hitamælirinn í bílnum mínum sýndi -4°C !

Um leið og ég kem upp í Skorra ehf., Bíldshöfða 12, geng ég inn og sé félaga minn, Hlyn. Ég hafði ekki hugmynd um að hann væri að vinna þarna. Allavega, við spjöllum saman og svona á meðan hann er að skipta um rafgeymi.

Eftir það, fer ég beinustu leið heim, fer í langa sturtu (aaahh) og fer svo að sofa. Tveimur tímum seinna vekur mamma mig og ég alveg brjálaður! Þar sem ég var ennþá drulluþreyttur og ennþá skítkalt! Eftir nokkrar tilraunir til að vekja mig og fá mig á fætur, tekst henni það...með því að taka sængina af mér! Það þýddi bara eitt; ég varð að drífa mig í föt til að hlýna.

Ég dríf mig í skólann. Í skólanum sé ég mikið af fólki í kringum einn blett á gólfinu. Ég fer og kíki á hvað er að gerast. Sé ég ekki stelpu liggjandi þar á gólfinu. Seinna kemst ég að því að þessi stelpa var að labba upp stigann og var nýbúin að borða eitthvað með eggjum (sem hún er með ofnæmi fyrir), liðið yfir hana og dottið niður stigann og rotast. Svei mér þá! Um daginn leið líka yfir einhverja stelpu. Hvað er að gerast? Er það satt það sem maður hefur heyrt; "skóli drepur"?
Við skulum núna taka okkur 1 min þagnarpásu til að syrgja þessar indælu stúlkur. Þó þær séu nú ekki dánar, vona ég.

Áðan borðaði ég heilan Papríkustjörnu poka og Vogaídýfu með. Djöfull er þetta geðveikt gott fyrst, svo fær maður bara ógeð og vill ekki sjá þetta Papríkuógeð aftur! Svo næsta dag byrjar maður aftur að troða þessu í sig. Djöfull er óþægilegt að verða saddur af snakki og ídýfu!

Ég er annars bara nettur á því. Er að fara að borða eftir smá stund. Auðvitað er ekki skyndibiti tvisvar í röð, þannig ég fæ hakk og spagettí í kvöld. Yay!

Allavega, ég er búinn að vera að nauðga laginu "When I Dream At Night" með Marc Anthony. Ég heyrði þetta lag einhverntíman á Létt 96,7, fór svo og keypti smáskífuna (:P) og hef ekki getað hætt að hlusta á það síðan. Þið getið náð í það hér (hægri smella og velja "Save Target As").

Ég er allavega farinn að gera einhvern skandal. Heyri í ykkur.




Athugasemdir ():