Deila á Facebook
« American Psycho | Aðalsíða | Erfið ákvörðun »

Nýr vírus í umferð!
Skrifað fimmtud. 26. janúar 2006 - 12:53
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er víst kominn nýr vírus í umferð. Hann er talinn vera mjög skaðlegur, skv. vírusvarnarframleiðendum.

Þessi vírus, sem er í dreifingu núna, er kallaður Kama Sutra eða W32.Blackmal.E, en vírusvarnarframleiðendur hafa ekki enn samþykkt eitt nafn fyrir hann. Hann eyðir öllum skrám með skráarendinguna doc, xls, mdb, mde, ppt, pps, zip, pdf, psd og dmp og er talinn vera mjög skæður.

Ef þú heldur þig hafa sýkst hafa þessum vírus, getur þú náð í tól sem fjarlægir hann hér

Ég mæli með AntiVir vírusvörninni. Hún er frí fyrir einkanot og er einnig mjög góð. Ég hef ekki fengið vírus í 2 ár, síðan ég byrjaði að nota hana. Ég bendi ykkur einnig á vírusvarnarsafnið mitt, en þar getið þið fengið öll forrit og tól til þess að losna við þessa veiru. Þar má meðal annars nefna AdAware, Microsoft AntiSpyware og Spybot S&D, svo eitthvað sé nefnt.

Nýr vírus í umferð !

Undanfarnar vikur hefur nýr tölvuvírus kallaður Kama Sutra verið í dreifingu, að vísu er vírusinn ekki kominn á það stig að um svokallaða “farsótt” sé að ræða en eftir því sem fleiri upplýsingar um það hvað vírusinn gerir mikinn skaða þá er vert að vara fólk við. Hægt er að sækja vírusvarnarforrit hér til að verja sig gegn þessum vírus.

Því miður hafa framleiðendur vírusvarnarforrita ekki ennþá sameinast um nafnagiftir á þessum vírus og því ber t.d þessi hin ýmsu nöfn hjá þeim eins og W32/mywife.d@mm (Sophos), W32/BlackmalE@mm (Symantec) og VB.bi(F-Secure).

Varðandi það hvað vírusinn gerir í reynd á sýktum tölvum er að á þriðja degi hvers mánaðar (byrjar 3 febrúar) þá eyðir hann öllum gögnum með skrárendinguna doc, xls, mdb, mde, ppt, pps, zip, pdf, psd og dmp.

Þrátt fyrir að vírusinn sé ekki orðinn mjög útbreiddur í dag þá er langt síðan að tölvuvírus hefur getað valdið álíka skaða á tölvum notanda.

Tekið af netheimur.is




Athugasemdir ():