Deila á Facebook
« Nýr vírus í umferð! | Aðalsíða | Helgin og slæmar fréttir »

Erfið ákvörðun
Skrifað föstud. 27. janúar 2006 - 16:02
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, kæru lesendur. Ég hef verið að velta fyrir mér erfiðri ákvörðun. Ég er samt loksins kominn með niðurstöðu og hún er

ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ DJAMMA Í KVÖLD !!!

...kemur á óvart!

Guðrún mín er að fara á Mörkina (kaffihús) á Akranesi í kvöld með vinkonum sínum, þannig ætli ég verði ekki bara að finna mér eitthvað annað að gera. En hver fer á Akranes til að fara á kaffihús? Segi svona, þetta er víst djamm-kaffihús eða eitthvað. Vonandi skemmta þær sér vel.

Allavega, hvað er planið hjá ykkur í kvöld? Ég er svona að spá í að kíkja til Ingvars og svo röltum við bara niður í bæ og förum að djamma. Ég stefni líka á það að hitta Birki niðri í bæ, sem var með mér úti á Ítalíu. Þannig það verður tekið á því í kvöld. Ég er búinn að kaupa kippu af bjór og er bara í góðum gír. Er að fara að vinna núna til 12 og svo verður bara tekið á því.

Ef þú ert vinur/vinkona mín og vilt koma með okkur Gvara niður í bæ, endilega bjallaðu þá bara í mig.

Heyyyyyrumst!




Athugasemdir ():