Deila á Facebook
« Erfið ákvörðun | Aðalsíða | Kunna ekkert að leggja! »

Helgin og slæmar fréttir
Skrifað sunnud. 29. janúar 2006 - 15:53
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Helgin var ágæt. Hún byrjaði svolítið illa en endaði frábærlega.

Á föstudeginum fór ég bara með Ingvari niður í bæ. Gugga mín fór með vinum sínum á Akranes. Svo þegar klukkan var orðin margt, ákvað ég bara að biðja Ingvar um að leyfa mér að gista heima hjá sér, þar sem ég gat ekki reddað neinu fari heim. Og auðvitað leyfði hann mér það. Takk Ingvar.

Um morguninn þegar ég vaknaði hringdi Jökull í mig og spurði hvað ég væri að gera. Ég sagði honum bara að ég væri fastur heima hjá Ingvari og vantaði far heim. Þá segir hann mér að hann sé niðri í bæ og komi eftir smá að sækja mig. Þannig ég komst heim, þökk sé Jökli. Ég fór bara beint heim og hélt áfram að sofa.

Svo seinna um kvöldið vakna ég við sterka pizzulykt. Ég fer fram og þar bíður pizza eftir mér! Ég háma hana í mig. Seinna hringir Jökull í mig og býður mér í chill til sín. Ég þigg það og fer að gera mig kláran. Ég kem til Jökuls í kringum hálf 12. Ég drakk einn bjór heima, tók svo 3 með mér og svo var bolla þarna! Er verið að reyna að fylla mann eða? Svo seinna um kvöldið bauð Oddur, bróðir hans Grétars, mér 2 bjóra þannig í endann á kvöldinu var ég búinn að drekka 6 bjóra og bollu!
Svo seinna um kvöldið kom Gugga mín og töluðum við saman heillengi, svo fórum við bara heim til mín að sofa. Takk fyrir að koma, elskan mín.

Svo fór hún áðan kl hálf 12 að vinna og ég hélt bara áfram að sofa.

Ég vaknaði svo áðan við símhringingu. Þetta var Hákon, gaurinn sem á Opex (fyrirtækið sem hýsir síðuna mína). Núna verð ég annað hvort að hætta með síðuna, byrja að borga fyrir hýsinguna, redda mér annari hýsingu eða að fá mér blog.central.is svæði.
Málið er það að ég hef verið að fá fría hýsingu fyrir síðuna mína í gegnum Kidda vin minn. Hann vann hjá Opex (sem hýsir síðuna mína núna) en hætti svo þar og byrjaði að vinna hjá mbl.is. Þegar Kiddi hætti, tók Júlli vinur hans við af honum. Síðan þá hef ég verið að fá þetta frítt í gegnum Júlla, þar sem ég þekki Júlla líka. En núna er Hákon, eigandi Opex, búinn að fá nóg af mér og minni plássfrekju. Ég skil hann alveg mjög vel, þar sem ég er að taka 390 MB pláss. Ég get nú alveg viðurkennt að ég geti minnkað við mig alveg helling, þar sem ég er með örugglega 350 MB af uppsöfnuðu drasli sem ég hef hvort sem er ekkert að gera við.
Þannig ef þig langar að styrkja mig, fátækan námsmann, með því að hýsa síðuna mína, þá máttu alveg senda mér línu.

Segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():