Deila á Facebook
« Kunna ekkert að leggja! | Aðalsíða | Reykingarbann á Íslandi? »

Jamm og já
Skrifað þriðjud. 31. janúar 2006 - 22:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það er mjög lítið að gerast!

Ég fór í skólann í dag. Svo eftir fyrsta tímann fór ég í World Class og svo fór ég heim að sofa. Svo fór ég í Sálfræðipróf. Mér gekk nú ekkert sérlega vel en ég held ég fari nú ekki niður fyrir 5. Svo fór ég í kór og svo fóru ég og Grétar á Café Adesso og hittum Ingvar. Svo skutluðum við honum bara heim og fórum sjálfir heim.
Þegar ég kem heim biður mamma mig um að fara á KFC og kaupa eitthvað handa okkur að borða. Ég segi henni að ég eigi ekkert bensín þannig hún gefur mér pening fyrir mat og bensíni.

Planið í kvöld var að hitta Guggu mína en það er allt búið að vera brjálað að gera hjá henni í dag. Hún var í skólanum frá 8-4 og fór svo beint að vinna til 8 og svo var starfsmannafundur hjá henni strax eftir vinnu og hann verður til sirka 12. Mikið að ræða greinilega. Svo vonandi hittumst við á eftir.

Ég er alveg sjokkeraður á þessu. Ég var bara í heimabankanum mínum og sé símareikninginn frá Og Vodafone og hann er upp á litlar 5500 kr! Og ekki nóg með það, heldur fékk ég líka reikning frá Borgarholtsskóla upp á 3300 kr! Ætli það sé ekki fallskatturinn vinsæli?
Ég skil ekki hvernig er hægt að senda sms fyrir 4000 kr? 386 sms send í þessum mánuði og auðvitað þarf sms'ið hjá Og Vodafone að kosta 10,69 kr!

En jæja, segjum þetta gott í bili.




Athugasemdir ():