Deila á Facebook
« Jamm og já | Aðalsíða | Helgarbloggið »

Reykingarbann á Íslandi?
Skrifað þriðjud. 31. janúar 2006 - 23:59
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Já, nú er aftur verið að ræða um hvort eigi að setja reykingarbann á þessu blessaða landi okkar.

Það er aftur verið að rifja upp þetta frumvarp sem var lagt fram fyrir nokkrum árum, um að það ætti að banna reykingar á kaffi- og skemmtistöðum. Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, kom með hugmyndina að þessu frumvarpi fyrir nokkrum árum og finnst mér hugmyndin vera fráleit!

Hver er að neyða fólk til þess að sækja kaffi- og skemmtistaði sem leyfa reykingar? Hreinlega enginn. Það er nóg til af reyklausum kaffihúsum, þó skemmtistaðirnir séu í lágmarki. Það er alltaf verið að níðast á reykingarmönnum! Sjálfur er ég reykingarmaður og læt ekki bjóða mér svona framkomu!

Það sem ætti aðallega að huga að er starfsfólk á stöðum sem leyfa reykingar. Þau hafa engan valkost um að vera þarna inni, eður ei. Annað hvort, eins og kom fram í viðbót við frumvarpið, að leyfa starfsfólki á stöðum að vinna á reyklausu svæði eða að bæta loftræstingu á reyksvæðum þar sem reyklausir starfsmenn eru skyldir til að vinna á.

Ég væri ekki lengi að koma mér burt af þessum klaka ef það ætti að banna reykingar á öllum kaffi- og skemmtistöðum.

Hvert er ykkar álit á þessari heitu umræðu í dag?




Athugasemdir ():