Helgarbloggið
Skrifað fimmtud. 2. febrúar 2006 - 17:25Já, ætli maður verði ekki að blogga aðeins um helgina sem er að renna í garð.
Ég allavega hef voða lítið að segja. Ég gisti hjá Guggu minni núna í nótt. Hún var svo dugleg að vakna fyrir kl 8 og mæta á réttum tíma í skólann, en ég svaf bara endalaust.
Svo fór ég í Sögu og svo fór ég og tók bensín á Atlantsolíu með dælulyklinum mínum.
Svo fór ég niður í bæ og ætlaði að borga utanlandsferðina en þá var pabbi búinn að redda því, þannig ég dreif mig heim í sturtu og fór svo upp í skóla og ætlaði að mæta í kór en nei nei, þá féll kór niður og ég var ekki látinn vita (takk Grétar!
).
Þá kíkti ég bara til Grétars og þá var hann að þrífa bíl fyrir einhverja konu. Sniðug vinna!
Hann er að taka 4000 kall fyrir alþrif, og þá meina ég sápun + skol + bón + þrif að innan. Það er ekkert verð! 
En allavega núna er ég bara að fara að vinna kl 6. Svo eftir það, ætli maður kíki ekki á bjórkvöld sem MS er að halda á Klúbbnum. Ætli maður fari svo ekki bara heim að sofa og vakni eldhress í skólann kl 8 á morgun.
Þetta er allavega fríhelgin mín þannig það er feitt djamm planað. Ég er að fara í ríkið á morgun og kaupa kassa af bjór!
Svo það er bara fín helgi framundan. 
En ég var að keyra áðan og þá sé ég Alfa Romeo 159! Þetta eru svo fallegir bílar að ég hreinlega slefaði.
Ég hef séð þennan bíl áður á mynd en aldrei á götunni hér á Íslandi.
Hann er með 2,4 lítra 5 cylindra vél sem er að skila 200 hestöflum.

Hérna eru svo fleiri myndir af honum
Segjum þetta gott í bili.
Ég allavega hef voða lítið að segja. Ég gisti hjá Guggu minni núna í nótt. Hún var svo dugleg að vakna fyrir kl 8 og mæta á réttum tíma í skólann, en ég svaf bara endalaust.
Svo fór ég í Sögu og svo fór ég og tók bensín á Atlantsolíu með dælulyklinum mínum.
Þá kíkti ég bara til Grétars og þá var hann að þrífa bíl fyrir einhverja konu. Sniðug vinna!
En allavega núna er ég bara að fara að vinna kl 6. Svo eftir það, ætli maður kíki ekki á bjórkvöld sem MS er að halda á Klúbbnum. Ætli maður fari svo ekki bara heim að sofa og vakni eldhress í skólann kl 8 á morgun.
Þetta er allavega fríhelgin mín þannig það er feitt djamm planað. Ég er að fara í ríkið á morgun og kaupa kassa af bjór!
En ég var að keyra áðan og þá sé ég Alfa Romeo 159! Þetta eru svo fallegir bílar að ég hreinlega slefaði.
Hann er með 2,4 lítra 5 cylindra vél sem er að skila 200 hestöflum.
img/misc/alfaromeo159.jpg
Hérna eru svo fleiri myndir af honum
Segjum þetta gott í bili.
Athugasemdir (

