Með hausverk um helgar
Skrifað laugard. 4. febrúar 2006 - 18:05Gærkvöldið var mjög skrautlegt.
Kvöldið byrjaði ekkert sérlega vel. Ég var búinn að gera mig fínan og var á leiðinni á Sólon í tvítugsafmæli hjá Hrönn, vinkonu Ingvars. Það var allt komið nema far niður í bæ. Ég spurði Maju frænku mína hvort hún væri til í að skutla mér á Sólon, en hún var bíllaus. Ég reyndi nokkra í viðbót en það gekk ekkert.
Afmælið byrjaði kl 9 en þarna var klukkan hálf 11 þegar ég loks spurði Óla, félaga minn, hvort hann væri til í að skutla mér fyrir 500 kall. Auðvitað var hann til í það!
Takk Óli minn. 
Loksins var maður kominn niður í bæ. Ég fór inn á Sólon og þar var slatti af fólki. Ég labbaði upp á efri hæðina og þar var afmælið. Ég hitti helling af fólki sem var að vinna með mér í Hagkaup á sínum tíma. Eftir endalausa drykkju og stanslausan dans, fórum við Ingvar.
Við kíktum aðeins á Hverfisbarinn. Ég ætlaði bara að kíkja hvort að Dóri og Siggi, kunningjar mínir, væru þar, þar sem þeir eru alltaf á Hverfis!
En nei nei, þeir voru ekki þar og það var ekki mikið af fólki þar, þannig við fórum bara.
Ingvar splæsti samt fyrst einhverju Sambuca rugli á mig. Það var hellt Sambuca í svona glas, kveikt í Sambuca'inu og maður lagði höndina ofan á það, og þá festist glasið við mann. Svo hristi maður glasið á meðan það var fast við mann, svo losaði maður það og þefaði gufurnar sem stigu upp, svo drakk maður glasið, svo tók maður skotglas og setti á hvolf, tók restina sem var eftir í glasinu og hellti ofan á botninn á skotglasinu og tók það svo í nefið! Þetta kallast víst "Flaming Sambuca" eða "Hönd Guðs" og kosta tvö stykki af þessu 1000 kall.
Næst fórum við á Glaumbar og þar var einhver hljómsveit að spila. Við Ingvar fengum okkur tvö Hot'n'Sweet skot og svo tvo Coronna bjóra, það var á einhverju tilboði, 700 kall. Við dönsuðum endalaust á Glaumbar, svo kíktum við á Café Cozy. Þar var hresst lið, eins og venjulega. Ég stóð hjá einhverju fólki við barinn og einn gaurinn bauð mér upp á bjór.
En eftir þennan bjór, þá var ekkert aftur snúið!
Þá var eins og einhver hefði byrlað okkur smjörsýru eða einhverjum andskotanum. Við komum léttir inn á Cozy, en svo eftir einn bjór urðum við báðir alveg á rassgatinu!
Þannig fljótlega bað ég Ingvar um að koma heim, þar sem ég var alveg að deyja.
Ég man þegar við vorum að labba heim til Ingvars. Ég man einnig þegar við komum inn og ég lagðist bara strax í sófann. Svo reyndi ég að standa upp og hlaupa inn á klósett til að æla og dó næstum því inni á klósetti.
Vááá, skrautlegt kvöld! Svo náði ég að koma mér á lappir og henda mér aftur í sófann.
Ég ætlaði sko að hitta Guggu mína en ég bara gat það ekki í þessu ástandi.
Það var líka fyndið hvernig Ingvar var þegar hann vaknaði.
Hann var í tómu tjóni. Hann hafði komið með mér heim, farið svo aftur niður í bæ. En ég skil ekki hvernig hann gat farið niður í bæ í þessu ástandi. Þau voru að tala um að það hefði verið ógeðslega vond lykt af honum og honum var illt í hausnum, þannig ég álykta það að hann hafi ætlað niður í bæ aftur en dottið ofan á einhvern illa lyktandi stað (ruslapoka eða eitthvað) og dáið þar til 9 í morgun og bankað svo heima hjá sér þannig Árdís kom og opnaði fyrir honum. Glætan að hann hafi farið blindfullur niður í bæ kl hálf 3 og komið heim kl 9. Séééénsinn! 
Svo í morgun vaknaði ég skítþunnur heima hjá Ingvari. Meðleigjendur hans, þau Einar og Árdís, voru eitthvað yfir mér og segjast langa til að sprauta rjóma framan í mig og eitthvað. Svo vaknaði ég endanlega þegar þau kölluðu "Guðjón", en þau voru ekkert að kalla á mig, þau voru bara að kalla á einhvern handboltagaur.
Allavega, ég vaknaði og spjallaði smá við þau. Svo var Árdís svo góð að skutla mér heim þegar hún var á leiðinni á æfingu.
Núna sit ég bara í tölvunni og er að blogga þetta rugl. Gugga mín er að fara í eitthvað vinnupartý sem mér er ekki boðið í, þannig ætli ég finni mér ekki eitthvað aftur að gera, þó það muni ekki innihalda áfengi í kvöld! Ó nei, ég fékk ógeð af áfengi í gær!
Ég er að spá í að bjóða Ingvari bara í bíó og svo bara á smá rúnt eða eitthvað.
Segjum það í bili. Gaui þunni kveður.

Athugasemdir (