Deila á Facebook
« Með hausverk um helgar | Aðalsíða | Til hamingju! »

Var helvíti reist á laugardegi?
Skrifað sunnud. 5. febrúar 2006 - 21:34
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæææææja, laugardagurinn æðislegi!

Í gær ákvað ég að sleppa því að djamma og drekka og rúnta bara allt kvöldið. Ég drakk víst yfir mig á föstudeginum og fékk óvænt ógeð af öllu áfengi. Allavega, Gugga var að fara í eitthvað staffapartý þannig ég bauð Ingvari og Jökli upp á rúnt. Ég bauð Guggu að hringja í mig ef hana vantaði far eða eitthvað. Jökull sagðist bara ætla að koma á sínum bíl niður í bæ og rúnta svo með okkur, svo hann gæti komist heim hvenær sem er.

Ég fer til Ingvars og sæki hann. Svo förum við bara að rúnta og blöstum Sálina á Laugarveginum. Svo verðum við geðveikt svangir og skellum okkur á Hlöllavagninn. Þá biður Halldóra mig um að fara upp á Höfða að sækja fleiri brauð og nautakjöt og eitthvað. Auðvitað geri ég það, ekki málið! Eini gallinn var að ég átti að sækja 2 kassa af brauði en það komst bara 1 í bílinn minn. En þau sögðu að 1 kassi myndi alveg duga, þannig ég og Ingvar fórum í smá leiðangur upp á Höfða og redduðum þeim. Svo skutlaði ég bara Ingvari heim og ég fór sjálfur heim.

En allavega, núna er ég bara að fara í bíó með Ingvari á myndina Fun with Dick and Jane.

Ciao!




Athugasemdir ():