Lærðu að keyra!
Skrifað mánud. 6. febrúar 2006 - 20:36Þetta var ágætur dagur. Ég hef meiri tíma núna til að blogga og gera aðra hluti en að eyða allri minni orku í að fá ákveðna manneskju til að tala við og hitta mig. 
Ég fór allavega í skólann kl 8. Þegar ég var á leiðinni stoppaði ég á beygjuljósi. Það var einhver Golf fyrir framan mig. Þegar hann drullaðist loks áfram eftir að hafa tekið sér nokkrar sekúndur í það að spá hvort það væri komið grænt eða ekki, beygjir hann og tekur tvær akreinar eftir beygjuna! Eftir að hann er búinn að keyra á tveim akreinum í svolitla stund, ákveð ég að standa á flautunni, þar sem ég var að drífa mig og ég komst ekkert fram hjá honum. Hann vaknar svo loksins og ég bruna fram úr honum.
Hvernig væri samt að læra að keyra? 
Ég bruna í skólann og kem á hárréttum tíma. Eftir Sögu, fór ég bara heim og ætlaði að fara að sofa, en þá hringir Grétar í mig og biður mig um að skutla sér í skólann, þar sem það var sprungið á bílnum hans. Ég skutla honum í skólann og fer svo aftur heim. Ég ákveð að sleppa því að fara að sofa þar sem ég átti hvort sem er að mæta eftir 1 klst í næsta tíma. Ég fer bara í tölvuna og á msn og eitthvað.
Ég bruna svo í tíma þegar klukkuna vantar 10 min í. Svo eftir Þýsku förum við Grétar á Subway og splæsir richboy á mig einum bát mánaðarins. Takk!
Svo förum við í Bónus Video og fáum okkur að drekka og svo förum við bara í tíma.
Eftir Íslensku bíð ég heillengi eftir Grétari í sófunum í Borgó. Ég bíð og bíð og bíð og svo loksins hringir hann í mig og spyr mig hvar ég er. Ég segist vera niðri í sófunum og segi honum að tíminn hafi verið búinn fyrir 20 min. Þá segir hann: "kennarinn minn tekur ekkert eftir tímanum".
Eins og bekkurinn myndi leyfa kennaranum að halda sér 20 min lengur? Séééénsinn!

Svo förum við á Olís og fyllum á kælivökvann á bílnum mínum og ég skipti út rúðuþurrkunni farþegamegin, út af því að blaðið á henni var laust. Svo brunum við í bæinn í þeim erindagjörðum að reyna að aflæsa símanum hans Grétars. Við byrjuðum hjá Og Vodafone. Þeir sögðust geta gert það en því miður væri tækið þeirra, til þess að gera það, bilað, þannig við brunuðum í Hátækni og þeir sögðust líka geta gert það, en það myndi kosta 3.850 kr. Því næst brunuðum við í Símann og þeir sögðust geta gert það en það var allt of dýrt og Grétar yrði símalaus í 1 dag sem gengur sko ekki!
Þannig við ákváðum að fara í Símabæ og athuga hvort kallinn þar kynni eitthvað á þetta. Hann sagðist kunna að gera þetta, en hann gæti ekki gert þetta þar sem honum vantaði kapal til þess og sagðist hafa hætt að gera þetta, út af of litlum tekjum við þetta, þar sem Og Vodafone gerir þetta frítt í dag. Hann benti okkur samt á síðu á netinu þar sem maður gæti náð í forrit sem myndi gera þetta fyrir mann. Svo keypti Grétar sér svona segul á símann til þess að geta haft símann á mælaborðinu í bílnum. Ég keypti mér auðvitað líka svona. Djöfull er þetta sniðugt fyrirbæri, og svoooooo þægilegt!
Næst fórum við bara heim og prufuðum að aflæsa þessari helvítis símadruslu í gegnum þessi forrit, sem gaurinn í Símabæ benti okkur á, en það tókst ekki. Látum þetta bara eiga sig og fáum Og Vodafone til að gera þetta frítt, þegar tækið þeirra kemst í lag.
En planið í kvöld er enn óvíst. Ætli það verði ekki bara kaffihús með vinunum eða eitthvað kózý. Ekkert ákveðið ennþá.
Segjum þetta bara gott í bili.

Athugasemdir (