The NeverEnding Story
Skrifað laugard. 11. febrúar 2006 - 16:23Það er langt síðan ég skrifaði eitthvað hingað inn á. Ég held það sé kominn tími til!
Á fimmtudaginn fór ég bara í skólann, svo fór ég beint að vinna. Eftir vinnu ákvað ég að kíkja á bjórkvöld á Klúbbnum sem FB var að halda. Ég get nú ekki sagt að það hafi verið neitt gaman á þessu bjórkvöldi. Kannski út af því að ég sat lengst í burtu frá fólkinu sem ég þekkti, þ.e.a.s. Guggu, Töru og Óla 3 (hann er kallaður "Óli 3" út af því að það eru 3 Ólar að vinna á Pizza Hut
). Ég fékk mér 1 bjór og eftir það þambaði ég bara vatn.
Eftir bjórkvöldið, töluðum við Gugga aðeins saman. Svo fórum við öll að skutla Óla 3 heim, svo skutlaði Tara mér og Guggu að mínum bíl og við fórum heim til Guggu. Við töluðum lengi saman og svo sofnuðum við í faðmi hvors annars.
Um föstudagsmorguninn, vaknaði ég þegar Tara kom að sækja Guggu kl 9 held ég. Þær ætluðu í World Class. Hver veit nema þær hafi farið?
Stuttu seinna drattaðist ég fram úr, fór heim og sofnaði til 11. Fór þá á fætur og brunaði í skólann og kemst ég þá ekki að því að það er frí í tíma hjá Aroni sálfræðikennara?!
Djööö var ég pirraður.
Ég hitti Andra, sem er með mér í sálfræði, í lobbyinu í skólanum. Hann var alveg jafn grútmyglaður og ég og sagði hann mér að það væri frí. Arrrg.
Ég fór þá bara heim og ætlaði að leggja mig til 3, en vaknaði ekkert fyrr en kl 5. 
Klukkan 6 fór ég að vinna. Ég, Davíð og Gummi áttum að vinna saman, en Gummi ákvað bara að mæta ekkert og slökkva bara á símanum sínum.
Ég hringdi bara í Gunna sem kom og bjargaði okkur. 
Svo klukkan hálf 10, komu Gugga og systir hennar Særún. Svo tóku þær 2 spólur og nammi fyrir 700 kr.
og svo fóru þær.
Eftir vinnu, ákvað ég að kíkja á bjórkvöld á Klúbbnum sem Live2Cruize (bílaklúbbur sem ég er í) var að halda, þannig ég fór í sturtu og gerði mig fínan. Ég bað svo Grétar um að koma með mér á bjórkvöldið og samþykkti hann það. Svo þegar við komum á Klúbbinn, ákvað Grétar bara að beila og fara að hitta vini sína.
Ég fór þá bara einn inn og það var sko ekki mikið af fólki!
Ég fann samt einn sem ég þekkti og var það Gulli gaulzi. Ég settist hjá honum og splæsti hann bjórum á mig. Hann var víst með heilan poka af þeim.
Seinna ákvað hann að beila með félögum sínum, en ég var skilinn eftir út af því að það var ekki pláss í bílnum þeirra. Óóóóókei... þá fór ég á fullt að reyna að redda mér fari, en ekkert gekk. Ég sagði Grétari að það væri að loka en hann gat ekki komið. Ég stóð þá bara við barinn og var að reyna að redda mér fari, með því að finna einhverja í símaskránni. Ekkert gekk. 
Stuttu seinna labbar einhver maður að mér og byrjar að spjalla við mig. Hann býður mér snafs í appelsín og þigg ég það. Svo spjöllum við saman og svo byrjar hann að labba að einhverjum 3 stelpum sem voru þarna. Ég labba fyrir aftan hann og byrja þau að spjalla saman. Hann spyr hvort að þær geti skutlað okkur niður í bæ, og þær segjast vera á 3ja sæta sportbíl með blæju.
Seinna ákveða þær að fara og kalla svo á mig.
Ég labba hratt í áttina til þeirra og svo þegar við komum, öskra þær: "Hlauptu drengur! Fljótur að setjast inn, áður en ógeðslegi kallinn kemur!". Ég hleyp í átt að bílnum þeirra og sest inn. Svo öskra þær á bílstjórann: "Fljót af stað! Fljót! Fljót!", og svo spólar hún af stað (nánast)
Þessar stelpur voru víst frá Sauðarkróki og voru þær hérna í Reykjavík til að keppa í körfubolta. Ég náði nöfnunum þeirra. Bílstjórinn hét Sigríður. Ég sagði þá: "Ah, Sigga", og þá varð allt brjálað og skýrt tekið fram að hún væri bara kölluð Sigríður, ekki Sigga.
Hin stelpan sem var shotgun, hét Hrund. Svo hin stelpan sem sat aftur í með mér, hét Jóhanna. Þetta voru hressar stelpur.
Þær voru alveg æstar í að fara á Hverfisbarinn. Ég ákvað að kíkja með þeim, þar sem ég var bara einn niðri í bæ.
Svo eftir smá tíma týndi ég þeim og þá ákvað ég bara að fara. Grétar sagðist vera á Aktu Taktu og bað mig um að labba frá Hverfis yfir á Aktu Taktu. Ég gerði það. Það var samt svolítið mikill labbitúr.
Ég labbaði í áttina að Aktu Taktu og raulaði eitthvað heimskulegt lag sem ég heyrði inni á Hverfis, þannig ég hafði eitthvað að gera og þá var tíminn fljótari að líða.
Svo þegar ég kem að Grétari, þá var hann í röðinni á Aktu Taktu að bíða eftir Taco Twister.
Svo eftir að hann er búinn að fá hann, ákvöðum við að fara á Hlöllavagninn, þar sem ég var að dreeeepast úr hungri. Á vagninum voru Sandra og Júlía að vinna (hva, enginn Áki?
). Ég verð nú að viðurkenna að Áki gerir betri báta en hún Sandra, þó þau gerðu nú bara brauðið, þá var brauðið aldrei brennt hjá honum Áka. 
Svo þegar ég er búinn að borða, hringi ég EINU SINNI í Guggu til að athuga hvort hún væri vakandi. Ég lofaði að hringja í mesta lagi 5x, en ég hringdi bara einu sinni! Djöfull er ég góður!
Hún svaraði ekki, þannig hún hlaut að vera steinsofnuð, þannig ég fór bara heim að lúlla einn. Þó það hefði verið betra að vera með kúrufélaga.
Það verður bara seinna. 
Svo núna áðan vaknaði ég við símann minn. Allt að verða vitlaust.
Ég sendi Guggu sms og spurði hvað hún væri að gera og hún sagðist vera í Smáralind með Særúnu, systir sinni. En planið í kvöld verður örugglega bara rúntur eða eitthvað rólegt bara.
Ég er núna að fara að þrífa bílinn minn, enda kominn tími til!
Ég held ég hafi bara aldrei séð hann svona skítugan.
Segjum það, elskurnar. Ciao. 

Athugasemdir (