Gærkvöldið - Bara rólegt
Skrifað sunnud. 12. febrúar 2006 - 17:39Gærkvöldið var bara rólegt. Það var bara slappað af og tekið því rólega, með engu áfengi! 
Ég byrjaði á því að sofa alveg endalaust. Svo vaknaði ég, fór út og þreif bílinn minn alveg 100%, bæði að innan og utan. Svo eftir það heyrði ég í Guggu, Grétari, Jökli og þeim og athugaði planið hjá þeim. Gugga ætlaði bara að fara snemma að sofa til að vakna snemma og læra undir sögupróf. Grétar ætlaði að fara að djamma. Jökull ætlaði á kaffihús. Mig, hinsvegar, langaði bara að taka rúntinn á þetta.
Áður en ég er á leiðinni út, hringir Erla í mig og spyr mig hvort ég nenni í pool. Ég var alveg til í það og fer í lágmúla. Þar voru Erla, Magga, Hulda og Bjöggi, kærastinn hennar. Þau voru öll mjög hress. Ég keppti við Erlu og Huldu og vann þær báðar.
Reyndar samt bara með heppni hjá Erlu, þar sem hún skaut svörtu ofan í vitlaust gat. Hún kláraði allar kúlurnar sínar, þegar ég átti 6 eftir en svo klúðraði hún því með því að skjóta svörtu ofan í vitlaust gat. 
Seinna fór Erla að skutla Möggu heim, og þá voru bara ég, Hulda og Bjöggi eftir. Við ákváðum að fara bara á rúntinn og rúntuðum nokkra laugarvega með Backstreet Boys í botni.
Hulda og Bjöggi voru ekkert að fíla það sérlega mikið.
Svo hittum við Erlu og Bigga á Esso planinu, þegar hún var búin að skutla Möggu heim, og Hulda og Bjöggi fóru yfir til hennar og þau fóru.
Þá fór ég og hitti Jökul á höfninni og spjallaði smá við hann og Betu, kærustu hans. Seinna bað Grétar mig um að sækja sig og fór ég til hans. Svo fórum við bara niður í bæ að rúnta. Kíktum aðeins á Hlöllavagninn og ég fékk mér að borða. Maja frænka mín og Júlía voru að vinna. Ég talaði smá við Maju og hún virtist ekkert allt of hress. Skiljanlega, þar sem hún var að fara að vinna í La Senza kl hálf 10 og hún þurfti að vinna á vagninum til 7-8.
Greyið.
En við ákváðum næstu helgi að hittast og gera eitthvað saman, þar sem við gerum aldrei neitt saman. Þannig ég bauð henni á kaffihús næstu helgi, og þáði hún það, þar sem það er fríhelgin okkar.
Ég fór svo inn í bíl til Grétars og við héldum bara áfram að rúnta smá.
Seinna um kvöldið, bauð Helgi okkur í heimsókn, og fórum við til hans. Það var ekkert sérstaklega mikið fjör hjá honum, þar sem allir voru að kveðjast þegar við komum. Þannig við buðum honum bara í bæinn með okkur. Þegar við komum niður í bæ, ákváðu þeir að fara inn á einhverja staði. Ég lagði bílnum og fór með þeim. Þegar við löbbum nokkur skref frá bílnum, byrjar Helgi með einhverja stæla við einhverja gaura, og hótaði að binda þá með einhverju reipi sem hann fann. Helgi var bara að grínast, en gaurarnir tóku ekkert allt of vel í þetta grín hans og löbbuðu upp að honum og gerðu sig líklega til að byrja eitthvað vesen. Helgi bakkaði bara út úr þessu og við héldum áfram að labba. Þá byrjaði Helgi aftur með vesen og hótaði að binda einhverja gaura, og þá gafst ég bara upp og sagði Grétari að hringja í mig þegar þeir væru búnir að djamma.
Ég fór bara að rúnta. Ég gerði einn hlut sem ég hefði átt að gera fyrir löngu, og það var það að hringja í Kamil. Ég hringdi í hann og spurði hann hvað hann væri að gera, og sagðist hann bara vera á leiðinni heim. Ég spurði hann hvort hann væri til í að hitta mig, og sagði hann já við því. Við ákváðum svo að hittast í Kringlunni. Þegar ég kom í Kringluna, var hann þar með Kristínu, kærustunni sinni. Við töluðum endalaust saman og sagði ég honum að það væri bara rugl að hunsa hvorn annan og eyðileggja áralanga vináttu. Hann var alveg sammála því. Svo spjölluðum við um allt á milli himins og jarðar, og svo lofaði ég honum að hringja í hann eða hann í mig. Ég á eftir að gera það. Ég er búinn að sakna hans geðveikt, þar sem áður en við hættum að tala saman, vorum við bestu vinir. Við gátum talað um allt við hvorn annan og svo gátum við komið með skoðanir okkar og leiðbeint hvor öðrum í rétta átt. Þetta var ekkert nema gott! Þetta var það besta við kvöldið!
Ástæðan af hverju við hættum að tala saman, var bara smá misskilningur, sem skiptir engu máli lengur.
Svo kveðjumst við og þau fara heim að sofa. Ég fer bara aftur niður í bæ og held áfram að rúnta. Það er svo gaman að rúnta einn!
Allavega, ég tók nokkra laugarvega og svo hringdi ég í Grétar og spurði hann hvort þeim langaði að fara heim? Þeir sögðu já og sögðust vera fyrir utan Gaukinn. Ég fór þangað og þeir komu inn í bíl. Svo skutlaði ég Helga heim og svo fór ég heim til Grétars. Þar lagði ég bílnum og spjölluðum við endalaust saman. Virkilega gott spjall sem við áttum. Það var um gjörsamlega allt!
Við komumst að þeirri niðurstöðu að við skiljum hvorn annan og erum ávallt til staðar fyrir hvorn annan, sama hvað kemur upp á. Svo eftir klukkutíma spjall, vorum við orðnir svo þreyttir að við ákváðum að fara bara heim að lúlla. 
Þegar ég kem heim, vek ég mömmu og við syngjum afmælissönginn fyrir pabba. Kallinn er orðinn 49 ára gamall. 1 ár í fimmtugt, og þá verður sko haldin veisla!
Til hamingju með afmælið, pabbi minni. 
Núna áðan vorum við úti að borða á American Style, í tilefni af afmælinu. Ég fékk mér tvöfaldan bacon borgara með frönskum og gosi. Vááá hvað ég er saddur. Held ég sé að springa!
En svo er ég að fara að vinna núna kl 6, eftir sirka 20 min.
Segjum þetta gott í bili. Þetta er orðin ágætis ritgerð.

Athugasemdir (