Deila á Facebook
« Life goes on - Eða hvað? | Aðalsíða | Helgin - Hvað er framundan? »

Skítblankur og vesen
Skrifað föstud. 17. febrúar 2006 - 01:40
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ágætur dagur, þrátt fyrir massaþreytu í morgun. Það var aðallega út af því að ég var frá 2 til 5 í gærnótt að tala við Guggu. Hún vildi fá að tala við mig og fór ég til hennar og töluðum við saman.

Svo í morgun vaknaði ég kl 1 og dreif mig í sögu til hans Sigga. Svo eftir það, sendi Grétar mér sms og sagði að það væri frí í kór, þannig ég fór bara heim og gerði mestu vitleysu sem hægt er að gera. Ég setti upp Counter-Strike aftur. Ég sem var hættur í öllu svona leikjabulli. Aðal ástæðan er sú að ég er á lausu og hef lítið að gera á kvöldin, þannig maður ákvað að prufa þetta aftur.

Svo í kvöld fór ég bara að vinna. Það eru komnir nýjir kassar í Bónus Video. Núna stimplar maður bara allt inn í gegnum skanna. Núna þarf ekki að muna nein verð eða neitt, allt orðið sjálfvirkt. Allavega, þetta er mun þægilegra, og svo í lok vaktar, þarf ekki að gera kassann upp. Hann gerir sig sjálfur upp. Svo verður það þannig að maður skrifar bara allt á sig í kassanum. Þá getur maður alltaf séð hvað maður er búinn að skrifa mikið á sig og svona. Þetta er drullu sniðugt!

En eftir vinnu fór ég á bjórkvöld, þar sem Jökull bað mig um að kíkja. Svo þegar ég kem, var hann ekki einu sinni þarna. Ég þekkti voða fáa þarna, þannig ég fór bara heim.

Djöfull verður reynt að djamma um helgina. Ég er ekkert að vinna þessa helgi, þannig það verður tekið feitt á því! Það er samt ömurlegt að vera skítblankur núna og mánuðurinn rétt svo hálfnaður. Djöfull! Núna verður maður bara að fara á sopafyllerí eða þá að biðja múttu og pabbs um lán, eins og ég enda alltaf á að gera í hverjum mánuði, þar sem ég er svo fljótur að klára launin. Enda þarf ég að borga svo mikið. Mat, sígarettur, kók, skuldir, símareikning ofl. ofl.

Mér er allavega boðið í 2 partý núna um helgina. Það er hjá Ingvari og hjá Dísu. Ætli maður kíki ekki bara í bæði og skelli sér svo helölvaður í bæinn!

Ég get varla beðið þangað til á sunnudaginn. Þið sem þekkið mig, vitið hvað gerist þá.

En núna er ég bara að fara að sofa. Orðinn drulluþreyttur og ég á að vakna kl 8 í skólann á morgun. Æðislegt! En við segjum þetta gott í bili. Ciao!




Athugasemdir ():