Helgin - Hvað er framundan?
Skrifað föstud. 17. febrúar 2006 - 17:27Jæja, ákvað að skrifa um svona helstu verkefni dagsins og koma með drög að plani um helgina. 
Ég byrjaði á því að skrópa í skólanum í fyrstu 3 tímana, svo mætti ég í lokatímann; Sálfræði. Í þeim tíma áttum við bara að byrja á því að gera sálfræðiskýrsluna um "beina athugun" eða "viðhorfskönnunina". Ég elska sálfræði.
Svo eftir skóla, fór ég með mömmu að versla í Gripið og Greitt fyrir sunnudaginn.
Við versluðum fyrir litlar 15.000 kr!
Eftir það fórum við aðeins í kaffi til Kollu upp á Hlöllabátum á Bíldshöfða. Svo fórum við bara heim og ég hjálpaði mömmu að ganga frá vörunum og svona. Aww, ég er svo góður! 
Eftir það reyndi mamma að kenna mér á þvotta- og uppvöskunarvélarnar.
Það gekk ágætlega, ég man bara: G og 40 er til þess að þvo, svo er H og I til að vinda.
Karlmenn eiga ekkert að þurfa að kunna þetta!
Allavega, ég held ég kunni þetta núna nokkurn veginn. 
En segið mér, hvað er planið um helgina? Er það djamm eða? Ég á ekkert sérlega mikinn pening fyrir áfengi, eins og hefur komið áður fram, en ég reyni að redda mér. Ég á einhverja 3 bjóra og heila tópas flösku. Spurning hvort það sé nóg?
Allavega, Hulda bauð mér á Ölver í kvöld. Spurning um að kíkja þangað og hitta fólkið og skella sér svo bara í bæinn. Það verður góð spurning hvernig þetta fer.
En núna er ég bara að fara í klippingu og strípur. Það er örugglega að verða komin öld síðan ég fór síðast í klippingu.
Kominn með heví mikinn lubba! 
Ég á örugglega eftir að taka myndir um helgina og ég á eftir að skrifa svo heila ritgerð um helgina, þannig hafið það gott um helgina og kíkið aftur á mig seinna.
Ciao!

Athugasemdir (