Gærkvöldið - Endaði með hörmungum
Skrifað laugard. 18. febrúar 2006 - 22:22Í gær þá var planið bara að fara til Ingvars og drekka hjá honum, og fara svo niður í bæ. Planið stóðst, en með ýmsum slæmum afleiðingum. 
Kvöldið byrjaði á því að ég tók mig til. Alfreð, félagi minn, hringdi í mig og bað mig um að picka sig og 2 félaga sína upp; þá Hlyn og Arnór P. Ég ætlaði að fara á bílnum mínum og skilja hann bara eftir hjá Ingvari, gista svo hjá Ingvari og keyra svo bara heim í fyrramálið, en ég sleppti því, þar sem ég treysti ekki að geyma bílinn minn niðri í bæ.
Ég bað pabba um að skutla okkur. Við förum og sækjum Alfreð, Hlyn og Arnór og svo skutlar pabbi okkur til Ingvars.
Hjá Ingvari þá spjölluðum við bara, drukkum og reyktum. Svo hófst einhver metingur um hver væri sterkastur, þannig við ákváðum að fara í sjómannakeppni.
Ég vann Alfreð, Hlyn, Arnór og Ingvar. Það er sagt að Arnór taki 100 kg. í bekk, en samt getur hann ekki tekið mig í sjómann, og ég tek sko ekki 100 í bekk.
Macho! Macho!
Svo drulluðum við okkur í bæinn eftir að við höfðum drukkið allt áfengið sem við áttum.
Þegar við komum í bæinn, fórum við strax á Glaumbar, því þar er best að vera!
Það var frekar dauft þar, þannig við ákváðum að kíkja á aðra staði og röltum bara á alla staði í 101.
Seinna fórum við á Rex, en auðvitað komst ég ekki inn, þar sem það er 25 þarna inn!
Ingvar komst inn, þar sem hann er að vinna sem barþjónn þarna. Hann gat samt ekki reddað mér inn. Ég beið bara fyrir utan eftir honum. Strákarnir voru farnir eitthvað annað og var ég bara einn þarna fyrir utan Rex.
Á meðan ég bíð eftir Ingvari, kemur að mér einhver gaur og byrjar að rífa kjaft við mig á fullu upp úr þurru! Ég segi honum bara að drulla sér í burtu. Hann heldur þá bara áfram að rífa kjaft og fer að ýta í mig. Ég ýti honum þá bara á móti. Þá labbar hann aftur að mér og kemur alveg upp við mig, þannig það var svona 1 cm á milli okkar. Ég ýti honum þá í burtu þannig hann hrasar. Hann stendur þá upp og ætlar að þjóta í mig. Ég er á undan og kýli hann með öllum mínum kröftum. Hann dettur og dyraverðir Rex fara að skipta sér að. Þeir halda mér og gaurinn flýr í burtu. Höndin mín er tvöföld núna, hún er svo bólgin. Næst þegar þið hittið mig, skal ég sýna ykkur það. Er alveg að drepast í höndinni!
Eftir þetta ævintýri, kom Ingvar út og við förum á Sólon. Félagi minn, Marteinn, sem er með mér í Live2Cruize, var í dyrunum og hleypti okkur félögunum inn. Við fórum upp á dansgólfið og Ingvar bauð mér bjór. Takk, Ingvar minn.
Eftir það fórum við bara að dansa og höfðum gaman. Gummi, félagi okkar, var að vinna á barnum. Seinna ákveðum við Ingvar að fara á klósettið. Þar hittum við geðveikt hressan útlending sem bauð okkur í nefið. Eftir það, sátum við bara hjá honum og félögum hans og spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Svo ákváðu þeir að fara á Pravda, en það kostaði inn. Ég og Ingvar vorum auralausir þannig við fórum bara eitthvað annað.
Seinna um kvöldið, hittum við Adda og Magga, félaga okkar, á Cozy. Addi og Maggi voru að vinna með okkur Ingvari í Hagkaup fyrir löngu síðan. Við lentum í algjöru rugli þar inni. Það er alltaf eitthvað rugl sem gerist inni á þessum stað. Fyrst smjörsýran og svo þetta. Allavega, við vorum þarna inni og svo ákveður Addi að fara á klósettið. Ég og Ingvar fórum með honum. Svo á meðan Addi er að bíða eftir klósettinu, verður hann svo pirraður að hann byrjar á fullu að sparka í hurðina. Við reynum að róa hann niður, en án árangurs. Eftir það, opnar loksins maður klósettið. Þá byrjar maðurinn að rífa kjaft við Adda og neitar að hleypa honum inn á klósettið. Og Addi, sem var pirraður og var alveg að míga á sig, ákvað að rífa kjaft á móti. Eftir smá rifrildi, ýtir Addi manninum þannig hann verður hræddur og flýr út. Þetta var sko svona 50 ára gamall maður. Eftir það, förum við inn á klósett og pissum allir í einu. Addi fékk klósettið, Ingvar ruslið og ég vaskinn.
Hehehe, meira ruglið! 
Eftir að við erum búnir að pissa, fer Addi að leita mannin uppi og ætlar að byrja með eitthvað vesen. Ég og Ingvar róum Adda bara niður en hann var alveg brjálaður. Svo byrja smá áflog á milli þeirra, en við vorum fljótir að bjarga því. Því miður rakst ég í bjórglas hjá Ásdísi, vinkonu Kristínar (kærasta Kamils), og varð hún alveg brjáluð og hljóp á eftir mér út og öskraði oft á mig: "Þú skuldar mér bjór!". Ég segi henni bara að ég sé ekki með pening. Hún hleypur til Adda og róar hann, en hún kyssti hann til að róa hann betur niður.
Svo röltum við bara eitthvað annað og fórum inn á Gaukinn. Þar hitti Addi annan gamlan mann. Addi spurði mannin hvort að hann væri ekki til í að bjóða sér í glas. Maðurinn segir þá við hann að hann geti reddað honum einhverju sterkara. Addi fer þá með honum og vini sínum, Skarpa, út og inn í portið hjá Gauknum. Ég og Ingvar eltum en þykjumst ekki þekkja Adda, þar sem við vildum ekki styggja burt manninn. Við röltum inn í portið og þykjumst bara vera blindfullir og vera að fara að pissa. Svo þegar maðurinn sýnir Adda og Skarpa dópið, kókaín réttara sagt, þá ræðst Addi á hann, kýlir hann mörgum sinnum og öskrar á hann: "Ertu að reyna að selja mér dóp, ógeðið þitt?". Ég blanda mér inn í, ríf í manninn og held honum upp við vegg. Á meðan ég held honum hringi ég í lögguna og segi þeim að koma strax fyrir framan portið hjá Gauknum, þar sem við værum með dópsala handa þeim. Á meðan ég held manninum þéttingsfast, reynir einhver stelpa að blanda sér inn í og slær endalaust í andlitið og hausinn á mér. Ég læt það ekki á mig fá og held manninum bara ennþá. Svo áður en löggan kom, kemur Addi og hleypur að mér og öskrar: "Slepptu honum Gaui! Við getum fengið kærur á okkur fyrir að ráðast á hann, þar sem ég kýldi hann og þú hélst honum!". Ég sleppti manninum samt ekki. Ég beið bara eftir löggunni og lét hana fá hann. Meiiiiiira ruglið!
Eftir þetta, fóru ég og Ingar bara á Hlöllavagninn. Ég fékk mér ekkert en Ingvar fékk sér bacon bát. Svo röltum við bara til Ingvars og fórum að sofa.
Svo núna í morgun vakna ég grautþunnur og hélt að hausinn á mér væri að springa!
Ég vaknaði við símhringingu frá múttu, þar sem hún var að spyrja hvort hún ætti að sækja mig. Ég þáði það og kemur hún stuttu síðar. Ég fer bara heim. Ég ákvað að fara út í Lyfju og kaupa linsuvökva en Lyfja var lokuð í Foldunum og Spönginni, þannig ég þurfti að fara alla leið í Lágmúlann til þess að kaupa þennan helvítis linsuvökva!
Þegar ég kem heim, gefur mamma mér pening til þess að fylla bílinn minn af bensíni. Ég fer og geri það. Kem svo heim, og þá biður Gugga mig um að fara í ríkið fyrir sig. Það var auðvitað lokað í ríkinu alls staðar nálægt mér, þannig ég þurfti að fara í Smáralind. Ég brunaði þangað og keypti kippu handa Guggu. Röðin þarna var endalaus! Hún varð samt miklu lengri eftir að ég var búinn að versla!
Svo fór ég með bjórinn til Guggu og endaði með að vera þar í 1-2 klst.
Ég var bara að laga tölvuna hennar, þar sem hún var orðin eitthvað lasin.
Ég náði loksins að laga tölvuna hennar. Vírusar, spyware, adware og allt farið!
Svo fór ég bara heim og fékk mér að borða.
En núna var ég að enda við að horfa á Eurovision úrslitin. Djöfull var Silvía góð!
Mér finnst lagið samt allt öðruvísi í beinni. Stúdíó upptakan er miklu flottari. En já, hún fékk 70.000 atkvæði, sem eru ekki nema 23% af landinu!
Vááá, lagið hennar er allt of vinsælt! 
En já, planið í kvöld er bara að fara til Ingvars og svo verður bara farið í bæinn. Ef Grétar kemur ekki með, er ég að spá í að vera bara á bíl í kvöld og rúnta og skutla fólki. Annars núna þá langar mig ekkert í bjór. Ég er alveg kominn með ógeð, en það breytist alltaf eftir fyrsta sopann.
Einnig er þetta fínn afréttari, þar sem ég er þunnari en andskotinn! 
En núna er ég kominn á góða leið með að skrifa lengstu bloggfærslu í heimi og þið án efa orðin leið á að lesa þessa vitleysu!
Segjum þetta gott í bili. 

Athugasemdir (