Laugardagurinn - Eurovision party!
Skrifað sunnud. 19. febrúar 2006 - 15:45Já já, laugardagurinn var fínn. Ég horfði á byrjunina af Eurovision undankeppninni heima hjá Guggu, en fór svo heim og horfði á afganginn þar.
Silvía Nótt rústaði þessu dæmi gjörsamlega! Hún fékk eitthvað í kringum 70.000 atkvæði, Regína Ósk lenti í öðru sæti með eitthvað í kringum 30.000 atkvæði og Friðrik Ómar lenti í þriðja sæti með eitthvað í kringum 10.000 atkvæði.
Ég kaus auðvitað Regínu Ósk, þar sem kórstjórinn minn er í bakröddinni hjá henni. Auðvitað styður maður sína menn. Er það ekki það sem klíkuskapur gengur út á?
Mér fannst hinsvegar 3 lög koma til greina sem voru sigurstranglegust. Það var lagið "Útópía" með Dísellu, lagið "Andvaka" með Guðrúnu og svo lagið "Þér við hlið" með Regínu Ósk. Mér fannst lagið með Regínu Ósk vera best. Þetta er of flott lag og of vel gert hjá þeim, sérstaklega bakraddirnar! Ég fæ alveg hroll þegar ég heyri bakraddirnar koma inn í. 
Mér fannst Birgitta Haukdal eða Friðrik Ómar engan veginn vera að gera sig. Þau syngja alveg mjög vel en lögin voru ekkert sérlega skemmtileg. Þeim vonandi gengur bara betur næst!
En hafiði hugmynd um hvar er hægt að nálgast þessi lög á netinu? 
Eftir Eurovision áhorfið, kom Grétar að sækja mig. Við fórum svo og náðum í Helga og Jóhannes Depp. Svo fórum við í Eurovision party sem kórinn var að halda. Dísa hélt partýið en Borgarholtskórnum var einungis veitt inngöngu. Þetta var fjörugt partý. Við vorum að syngja endalaust og mest allt íslensk fjörug lög. Einnig tókum við nokkra kór slagara.
Svo ákváðu strákarnir að fara niður í bæ. Ég ætlaði með þeim en festist á tal við Láru. Svo eftir ítrekaðar tilraunir hjá strákunum til að fá mig með sér, þá loksins náðu þeir mér með. Við brunuðum í mjóddina og Kelli fór og keypti 2 kippur af bjór, þar sem allir voru bjórlausir. Svo fórum við til Ingvars. Það var nú ekki mikið af fólki hjá Ingvari, en það var fámennt en góðmennt.
Svo byrjaði metingur á milli strákanna hvor væri sterkari. Auðvitað endaði það með sjómannakeppni, eins og alltaf.
Það endaði með því að ég tók Helga en svo fór ég í Ívar og vorum við jafnir í nokkrar mínútur, en svo tókst mér loksins að hafa hann. Eftir Ívar þá gat ég ekki meir! Mér er m.a.s. ennþá illt í tvíhöfðanum!
Þetta tekur á! 
Svo röltum við niður í bæ. Það var klikkað mikið af fólki í bænum, líklegast út af Eurovision. Það voru langar raðir allstaðar! Maður er ekki vanur svoleiðis. En við kíktum á nokkra staði. Svo lentum við í svo miklu rugli á Gauknum að við urðum pirraðir og ákváðum að fara bara heim, áður en við hefðum fríkað. Gugga var bara að djamma með vinum sínum og ákváðum við að hittast eftir djammið og kúra saman.
Grétar skutlaði mér sem sagt til hennar og við fórum að sofa.
Núna í morgun vöknuðum við kl sirka 1 og kom Tara og sótti okkur. Tara ætlaði að skutla Guggu að ná í bílinn sinn, þar sem hún skildi hann eftir í partýinu sem hún var í, í gær. Svo skutlaði hún mér heim. Takk, Tara.
Svo fór ég bara heim og kvaddi foreldrana mína. Núna sit ég bara í tölvunni og hundleiðist. 
En hvað segiði, hvernig var helgin ykkar? Og endilega segið mér eitt! Hvort finnst ykkur réttara að segja "uppvöskunarvél" eða "uppþvottavél" ?
Það hafa verið deilumál um hvort er réttara að segja. 
Allavega, ég tók nokkrar myndir um helgina og eru þær allar hér! Þær eru samt frekar fáar og óskýrar, en þið hafið ábyggilega gaman af því að skoða þær.
Ciao! 

Athugasemdir (