Deila á Facebook
« Fyrsta kokkareynslan! | Aðalsíða | Með þeim rólegri »

Löggan - Alveg heilalaus?
Skrifað mánud. 20. febrúar 2006 - 04:16
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég og Jökull fórum á rúntinn núna áðan. Tókum nokkra laugara. Svo fórum við á BSÍ, þar sem ég var orðinn drullu svangur.

Svo eftir ofkrydduðu franskarnar mínar, fórum við einn laugarveg. Á leiðinni þá vorum við stoppaðir af löggunni. Löggan kemur að glugganum mínum og spyr mig um ökuskírteini. Svo spyr hún mig hvort ég hafi verið að drekka eitthvað. HVERSU HEIMSKULEGT ER ÞAÐ? Eins og ég færi að segja já, ef ég væri búinn að drekka eitthvað?!?!

Löggan: Þú ert ekkert búinn að vera að fá þér eitthvað að drekka í kvöld, er það nokkuð?
Ég: Jú jú, ég er búinn að drekka alveg heila kippu

Hvaða fæðingarhálfviti færi að segja já við svona spurningu?
Löggan lét mig ekki blása eða neitt, þannig hefði ég verið búinn að drekka, þá hefði ég sloppið frekar auðveldlega með því að svara bara "Nei" við þessari heimskulegu spurningu.

Svo erum við á leiðinni heim og þá er önnur lögga sem bíður eftir mér vinstra megin í hringnum. Ég fer þá auðvitað bara hægra megin, en þá eltir hún mig og stoppar mig. Svo kemur löggan að glugganum mínum og býður góða kvöldið og spyr mig um ökuskírteini aftur. Ég rétti honum það og þá spyr hann Jökul líka um skilríki. Til hvers í andskotanum? Jökull réttir honum bara skilríkið sitt og þá fer löggan með bæði skilríkin inn í bíl til sín og lætur okkur bíða alveg heillengi. Svo spyr hann eitthvað hvernig bíll þetta væri og spyr hvort ég ætti hann og eitthvað. Vááá! Svo kemur hann með þessa heimskulegu spurningu: "Ert þú búinn að vera að drekka eitthvað í kvöld?". Ég segi bara "Nei" og þá segir hann bara ok og lætur okkur fá skilríkin. Eins og ég færi að segja já, ef ég væri búinn að drekka eitthvað? Vááá, þessi lögga er ekki alveg í lagi sko! Svo spyr ég hann hvort hann hafi áhuga á bílnum og hvort hann vilji kaupa hann og hann segir bara: "Nei, ég var bara að spyrja". Svo förum við bara.

Ég á bara ekki til orðs! Er löggan virkilega svona vitlaus?




Athugasemdir ():