Með þeim rólegri
Skrifað mánud. 20. febrúar 2006 - 21:37Þetta er búinn að vera með þeim rólegri dögum sem ég hef lifað. Ég fór kl 8 í morgun að sofa. Ég stillti tölvuna (risastóra hátalara), símann minn, 2 vekjaraklukkur og allt á 15:30. Svo vakna ég sjálfur kl 15:25! Ég dríf mig fram úr og slekk á öllum vekjaraklukkum og drasli, svo ég myndi ekki fá áfall þegar allt færi í gang. Alveg ótrúlegt hvað maður getur gert ef maður hefur bara viljann í það.
Klukkan í hausnum mínum virkar greinilega bara ágætlega! 
Svo vaknaði ég, fór í sturtu, smurði mér samloku og svona og settist svo bara í tölvuna. Believe it or not, en ég hengdi sjálfur upp handklæðið eftir sturtuna! Ég sem geri það aldrei!
Þetta er farið að breyta mér svolítið.
En það var enginn skóli í dag, þar sem það er eitthvað vorfrí í skólanum, sem er bara 1 dagur.
Ég er svolítið kvikindi.
Ég sendi Guggu sms í morgun þegar ég fór að sofa og sagði henni að skemmta sér í skólanum.
Hí hí. 
En svo í dag hringdi Kolla frænka í mig og bauð mér í mat. Ég þáði það með þökkum og mætti til þeirra 18:30. Takk kærlega fyrir mig!
Svo eftir það fórum ég og Maja í kareoki.
Svo endaði bara með því að ég var einn að syngja. Maja fór að horfa á Kallana.
Svo þegar ég var búinn að syngja, kvaddi ég fólkið, þakkaði pent fyrir mig og fór heim.
Núna er ég að pína mig í að reyna að fara að læra. Það gengur ekkert sérlega vel, þar sem ég nenni því einfaldlega ekki. En ég ætla samt að gera það.
Ég er að fara í 2 próf á morgun, í íslensku og í sögu. Í sögu þarf ég að skila 50 spurningum úr efninu sem ég þarf að svara.
Gaman gaman!
Svolítið skrítið að vera svona einn og yfirgefinn.
En Gugga sagðist kannski ætla að koma til mín á eftir þegar hún er búin að passa. 
Ég kveð í bili, farinn að læra eða eitthvað. Segjum það.

Athugasemdir (