Deila á Facebook
« Mikið afrek | Aðalsíða | Helgin framundan »

Stöð 2 - Slæmt sjónvarpsefni
Skrifað fimmtud. 23. febrúar 2006 - 12:34
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Hafið þið séð þáttinn "My Sweet Fat Valentina" á Stöð 2?

Þetta er ítalskur sápuóperuþáttur og er held ég bara mesta vitleysa sem ég hef á ævinni séð!

Umfjöllun á stod2.is

Nýir framhaldsþættir, s-amerísk sápuópera af bestu gerð, sem nýtur geysilegra vinsælda um heim allan. Fjallar hún um Valentínu, unga og svolítið svera konu sem karlmönnum þykir ómótstæðileg, enda er hún yndislega ljúf og góð og með kímnigáfuna í lagi. Þættirnir verða framvegis alla virka daga á morgundagskrá Stöð 2.

Mér finnst þetta bara vera eitt af mesta bulli sem ég hef séð í sjónvarpi. Það er fáránlegur söguþráður í þessu, leikararnir standa sig með eindæmum hræðilega og má líkja þessu mest við Bold and the Beautiful eða Neighbours, nema að þetta er á ítölsku og er miklu lélegra en þeir þættir.

Ef þið sjáið ykkur fært að horfa á þennan þátt í nokkrar mínútur, hvet ég ykkur eindregið til þess, til þess að sjá hvað ég er að tala um.

Einnig þessi þáttur á Stöð 2, Whose Line Is It Anyway?, með grínistanum Drew Carey. Þessi þáttur finnst mér einnig glataður, og skil ég ekki hvað Stöð 2 eru að spá að hafa þessa þætti í sýningu. Ég hef varla séð verra sjónvarpsefni, nema þegar ég var úti á Ítalíu og það flæddu inn ítölsku sápuóperurnar.
Þessi þáttur, Whose Line Is It Anyway?, fjallar ekki um neitt, nema það að þeir eru að gera helling af svona sketchum, eins og þeir gerast verstir. Drew kemur með einhvern sketch handa hinum og þeir eiga svo að gera hann. Þetta er alveg glatað!

Hinsvegar með "nýju" sjónvarpsrásina Sirkus. Ég hef ekkert nema gott um hana að segja. Þeir eru að sýna þætti eins og American Dad, Kallarnir, Friends, Summerland (O.C. 2?), Smallville, X-Files, My Name Is Earl, The War At Home og fleiri góða þætti. Fínt sjónvarpsefni þar. Einnig eru þeir með svona tónlistardagskrá, eins og PoppTíví.

Einnig, þar sem ég er að röfla, vil ég kvarta undan þessari "dagskrá vikunnar. Það eru 22 bls. í þessari dagskrá, en samt er aðeins verið að sýna dagskrána fyrir dagana 22-28. febrúar. Sem þýðir mest allt af þessari blessuðu dagskrá eru auglýsingar. Auglýsingarnar byrja fremst og svo byrjar dagskráin í miðjunni, eftir að maður er búinn að fara yfir mjög margar auglýsingar.

Nei, mig vantar ekki sjálfskipta Fiestu. Mig vantar ekki nýtt sófasett. Mig vantar heldur ekki ljós frá Spáni. Mig vantar ekki glænýjan Alfa Romeo. Mig vantar ekki nýtt rúm. Mig vantar engar barnavörur (allavega ekki strax, má ég hafa samband við ykkur þegar mig vantar?). Mig vantar ekki nýjan sturtuklefa, né bað. Mig vantar ekki Rautt Eðal Ginseng!
Svo ég tali nú ekki um nýja undralyfið Life Extension, sem dagskráin er að auglýsa, mig vantar það ekki heldur. Og ég efast nú um að þetta virki, þar sem þeir segja: "Hver sem er á að geta haft útlit og líðan fyrir að vera 5-15 árum yngri en hann er".
Eins og ég sagði, mig vantar ekki sófa! Mig langar heldur ekkert á dansleik og félagsvist. Mig vantar ekki nýjan Grand Cherokee 2006! Mig vantar engar stereogræjur heldur. Mig langar ekki í skyr. Mig vantar hvorki ljósritun, né prentun. Mig vantar enga helvítis pelsa! Mig vantar ekki nuddstól. Mig vantar ekki útvarp! Mig langar heldur ekkert að vera virkur foreldri. Mig vantar heldur engar snyrtivörur, eða hvað? Og svo enn og aftur; mig vantar ekkert helvítis sófasett! Og svo eru auðvitað miklu fleiri auglýsingar, en ég bara nennti ekki að telja þær upp.

Þetta þrífst náttúrulega bara á eintómum auglýsingum, þetta skítablað!

Gott að létta aðeins á sér!




Athugasemdir ():