Deila á Facebook
« Stöð 2 - Slæmt sjónvarpsefni | Aðalsíða | Djammari »

Helgin framundan
Skrifað föstud. 24. febrúar 2006 - 14:52
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Það gengur svona upp og ofan að vakna í skólann. Gekk frekar illa en ég er að reyna að bæta það.

Í gær þá var ég bara að vinna. Gugga kom til mín í vinnuna og fékk hjá mér lykla og ætlaði að fara heim til mín að læra. Það endaði með því að hún lærði ekkert og horfði bara á DVD þangað til ég kom heim. Svo fórum við að skoða myndaalbúm síðan ég var krakki og eitthvað. Voða gaman! Svo fórum við bara að sofa.

Núna í morgun vaknaði ég ekki í fyrsta tímann, en mætti svo í sálfræði. Svo eftir sálfræði, fór ég með Andra og við prentuðum út sálfræðiskýrsluna sem við áttum að skila. Svo fór ég með Grétari á Nings og svo fórum við aftur upp í skóla og ég valdi mér eitthvað að gera á Skóhlífadögunum (listi yfir val).
Ég valdi á miðvikudeginum kl 9, Jiu-Jitsu námskeið. Svo á miðvikudeginum kl 13, valdi ég Skíðaferð. Ef það snjóar ekki, verður gengið í Elliðarárdalnum. Svo á fimmtudeginum kl 9, valdi ég mér Tilfinningartakt, sem er einhver svona tilfinningardans.

Svo fór ég upp í Bónus Video og sótti miðann minn á Myndbandahátíðina sem verður haldin í Versölum á laugardaginn. Það verður stuð. Það segja allir að það verði frítt áfengi þarna, en ég treysti því ekkert, þannig ég verð orðinn góður áður en ég mæti. Spurning um að bjóða nokkrum manneskjum heim í smá "fyrirparty" svo við getum byrjað gleðskapinn fyrir aðal djammið, fengið okkur að drekka og svona. Þetta verður gaman!

En núna í kvöld var mér boðið í partý af einhverjum 89 stelpum. Spurning um að kíkja. Efast samt um það. Svo er ég að fara að vinna núna kl 6 og svo verður bara að koma í ljós hvað maður gerir eftir það. Ég var svona að spá í að þrífa bílinn minn núna svo hann sé hreinn og fínn fyrir kvöldið, ef maður ákveður að kíkja á rúnt eða eitthvað.

Gaman að þessu. Segjum það í bili. Ciao!




Athugasemdir ():