Deila á Facebook
« Helgin framundan | Aðalsíða | Myndbandahátíð 2006 »

Djammari
Skrifað laugard. 25. febrúar 2006 - 16:08
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, hvert er stefnan tekin í kvöld?

Er það ekki bara djammið? Maður var svo helvíti edrú í gær að maður verður bara að bæta fyrir það. Ég var bara að rúnta. Fór og skutlaði Alfreði, félaga mínum, úr Mosó í Grafó. Djöfull er Mosó asnalegur bær. Lengst úti í rassgati og það er varla hægt að rata þarna! En það reddaðist á endanum. Svo fór ég bara til Danna og við fórum að rúnta niðri í bæ. Svo hittum við Jökul og spjölluðum lengi vel við hann. Hittum svo Nóra og spjölluðum einnig við hann.

Svo klukkan hálf fimm bað Gugga mig um að sækja sig í eitthvað partý sem hún var í hjá vini sínum. Ég fór og sótti hana, skutlaði Danna heim og svo fórum við Gugga bara heim að sofa. Svo í morgun vaknaði ég við að Gugga var að fara. Seinna hringir síminn minn endalaust og það er helling af fólki að biðja mig um að fara í Ríkið fyrir sig. Eini ókosturinn við að vera orðinn tvítugur. Endalaust verið að biðja mann um að fara í Ríkið fyrir sig.

En núna í kvöld er það þessi Myndbandahátíð sem er haldin í Versölum. Það eru víst flest allar videoleigurnar sem mæta á þennan viðburð. Ég hef aldrei farið á þetta áður, en þetta verður spennó, þar sem það er frír matur og frítt áfengi. Við ætlum nokkur að hittast hérna hjá mér kl 6 og byrja að hita upp fyrir gleðskapinn, fá okkur að drekka og chilla. Svo förum við á Myndbandahátíðina!

En hvað er planið hjá ykkur? Ætli maður segi þetta ekki bara ágætt. Ég mun ábyggilega blogga um helgina og koma með einhverjar myndir. Ciao!




Athugasemdir ():