Myndbandahátíð 2006
Skrifað sunnud. 26. febrúar 2006 - 17:10Jæja, ég skrapp á Myndbandahátíð 2006 sem var haldin í Versölum við Hallveigarstíg. Þetta var aldeilis gaman.
Í gær þá hitti ég Rakel uppi í Bónus Video. Hún bað mig um að fara í Ríkið fyrir sig, þannig við brunuðum í Mosó en það var búið að loka Vínbúð þar þannig við þurftum að fara alla leið í Vínbúð við Dalveginn í Kópavogi. Svo skutlaði ég Rakel aftur upp í Bónus Video. Svo þegar ég kom heim, var klukkan akkúrat 6, þar sem við ætluðum að hittast heima hjá mér í smá fyrirpartý. Dóri og Eygló mættu fyrst, en svo kom Rakel seinna.
Þau fengu sér bara að drekka og svona á meðan ég skrapp í sturtu og gerði mig fínan fyrir kvöldið. Þetta byrjaði ágætlega, en svo þegar klukkan var orðin 8, þurftum við að komast niður í bæ. Rakel hringdi fyrst í pabba sinn, sem ætlaði að skutla okkur á rútunni sinni, en hann nennti ekki að koma, þannig Rakel hringdi þá í vinkonu sínu Írisi Rut. Takk Íris, fyrir að skutla okkur fulla fólkinu.
Svo þegar við vorum komin niður í bæ, byrjuðum við á því að fela afganginn af áfenginu okkar. Svo fórum við inn. Þegar við komum inn, settumst við strax í sófana og fengum okkur að reykja. Svo auðvitað þurftum við að kaupa meira áfengi á barnum. Einn helvítis bjór kostaði 600 kr, sem er mikið dýrara en almennt verð niðri í bæ!
En maður lét sig samt hafa það.
Svo kom að matnum. Í forrétt var humarsúpa. Vá, þessi súpa var svo góð að ég fékk mér 3 diska. Hahaha, tók súpu sem var á borðinu þar sem enginn sat og svo borðaði ég súpuna hennar Eyglóar líka.
Hehehe, þetta var gaman. Svo í aðalrétt voru nautalundir og kalkúnn og yndisleg brún sósa með. Nammi namm!
Ég fékk mér 2 diska af því. Djöfull var maður svangur, enda ekkert búinn að borða.
En svo endaði gleðskapurinn skjótt, þar sem ég var orðinn svo fullur. Eftir kynningu á bestu kvikmyndum ársins 2005 ákvað ég að fara bara heim. Auðvitað vann Sin City, enda snilldar mynd!
Eftir það bað ég Guggu um að sækja mig og kom hún strax og hún var búin að horfa á DVD með systir sinni. Takk, Gugga mín! 
Svo þegar við komum heim, leyfði ég Guggu að opna húsið mitt, þar sem ég lét hana fá lykil að húsinu mínu um daginn.
Svo fórum við bara inn og fórum eitthvað að fíflast. Hún sat í tölvunni og var eitthvað að tala við vini mína á MSN og ég var eitthvað að fíflast í kring. Ég man bara að hún var alltaf að segja við mig: "Djöfull ertu drukkinn".
Einnig man ég líka eftir því að hafa verið að fikta í hárinu hennar og verið að dást að strípunum hennar og svo gaf ég henni nudd. Það er það sem ég man. 
Svo seinna um nóttina komu Kamil og Danni og spjölluðum við smá saman. Ég var svo þreyttur og fullur að ég sagði þeim bara að ég ætlaði að fara að sofa, þannig þeir fóru fljótlega. En samt gaman að fá ykkur, strákar mínir.
Svo fórum við Gugga bara að sofa.
Details of my life!
Ég tók nokkrar myndir. Ég sem ætlaði að vera svo duglegur að taka myndir! 
Myndirnar má finna hér
En núna kl 6 er ég að fara að vinna, þannig við segjum þetta bara gott í bili.

Athugasemdir (