Velferðarkerfið - Mismunun?
Skrifað þriðjud. 28. febrúar 2006 - 22:52Ég var að horfa á Kastljósið, þar sem var verið að tala um mismunun velferðarkerfisins á sjúklingum, öryrkjum og öldruðum.
Ég vil byrja á því að segja að ég veit afar fátt um þetta mál, fyrir utan það sem ég sá í Kastljósinu. Mér blöskraði við það að sjá hvernig heilbrigðisráðherra kom fram þarna í Kastljósinu.
Þeir voru þrír þarna; Sigmar, dagskrárgerðarmaður, Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, og Karl Steinar, forstjóri Tryggingastofnunar.
Sett var fram skýrsla um bætur á velferðarkerfinu. Í þessari skýrslu var sýnt fram á að velferðarkerfið væri að mismuna sjúklingum, öryrkjum og öldruðum, með því að láta ríkið borga niður mismunandi upphæðir af lyfjakostnaði, sem ákvarðaðist af því hvort um væri að ræða langveik börn eða ekki, hvort maður væri þunglyndur, þjáist af mígreni, gigtveikur o.s.frv. Er ekki sjálfsagt að kunna að lesa áður en maður býður sig fram sem ráðherra? Mér finnst alveg með ólíkindum hvernig Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, hagaði sér þarna. Hann þóttist mistúlka skýrsluna þannig að það ætti að hækka lyfjakostnað þeirra sem væru að borga lágan lyfjakostnað, í stað þess að lækka lyfjakostnað hjá þeim sem eru að borga hærri lyfjakostnað, eða vega á móti niðurborgun ríkisins, með því að láta ríkið greiða niður meira af kostnaðinum.
Í byrjun fannst mér Karl Steinar, forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins, vera að hylma yfir með heilbrigðisráðherra, að hann hefði sagt á fundinum að hann væri á móti opinberun skýrslunnar, þó RÚV hefði haft tvo heimildarmenn sem sögðu annað. Heilbrigðisráðherra fór að þræta fyrir þetta, og hylmdi Karl Steinar yfir honum, með því að segja að þetta skipti ekki máli. Auðvitað var það bara út af því að þeir voru saman á þingi. Seinna komst Karl Steinar að því að hann væri ekki að græða neitt á því að þykjast vera sammála heilbrigðisráðherra, þannig hann fór að koma sínum skoðunum á framfæri, sem gerði heilbrigðisráðherra algjörlega orðlausan.
Sigmar sagði að heilbrigðisráðherra hefði haft sterkar skoðanir við þessari skýrslu á þingi, en hafi dregið allt til baka í Kastljósinu. Það var bara fyndið að sjá heilbrigðisráðherra svona eins og skít, þar sem þeir tveir, Sigmar og Karl Steinar, voru gjörsamlega að kaffæra honum.
Sá einhver þetta? Ef ekki, þá getið þið horft á þáttinn hér. Endilega horfið á þetta og segið ykkar álit á þessu.
Ég persónulega er með því að lækka lyfjakostnað þeirra sem eru að borga hærri lyfjakostnað en aðrir. Alveg fáránlegt að mismuna svona á þeim grundvelli eftir því hvaða sjúkdóm maður á við að stríða, hvort maður sé langveikur eða ekki, og hvort maður sé nógu aldraður.

Athugasemdir (