Deila á Facebook
« Skítakuldi! | Aðalsíða | Jólin að koma? Ekki alveg! »

Smá viðbætur ofl.
Skrifað fimmtud. 27. október 2005 - 17:11
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þetta er búið að vera frekar leiðinlegur dagur í dag. Ég fór í skólann kl 8. Var búinn í skólanum kl 12. Fór svo heim að gera ekki neitt.

Ég pantaði mér svona "Mitt kort" hjá Landsbankanum í gær. Ég fékk mér með mynd af mér, en svo spurði vinur minn mig af hverju ég setti ekki mynd af bílnum mínum. Ég bara "Doh!". Hehe, ég fæ mér bara annað seinna með mynd af bílnum mínum.
Ég fór svo að athuga hvort kortið væri tilbúið áðan. Ég hélt ég hefði pantað það á Þriðjudag, nei nei... ég pantaði mér það í gær (Miðvikudag). Meira ruglið, alveg hvað maður er með lélegt skyn fyrir tímanum. Ég sæki það á Mánudag nk.

Varðandi síðuna, mér fannst svo óþægilegt að geta ekki séð hvort það væru komnar nýjar athugasemdir, þannig ég gerði það svoleiðis að núna birtist stjarna á forsíðunni þegar það eru komnar nýjar athugasemdir.

Allavega, ég fór allt í einu upp úr þurru áðan að spá í að byrja aftur í samkvæmisdansi. Ég er nú Íslandsmeistari, þannig maður hlýtur að vera þokkalegur dansari. Af hverju að byrja aftur? Þetta er góð hreyfing og þetta er mjög gaman!
Þegar ég var með Huldu, ætlaði ég alltaf að biðja hana um að byrja með mér í dansi. En svo fór allt í vaskinn, þannig ekkert varð úr því.

Mér er boðið á morgun í bíó á forsýningu myndarinnar The Exorcism of Emily Rose. Vinnan mín, Bónus Video, er að bjóða mér tvo miða á hana, pizzu og kók! Hvurslags eðall! Þetta er fríhelgi þannig ætli maður skelli sér ekki. Spurning samt hverjum maður á að bjóða. Maður á svo marga vini, hehe.

Ég er allavega að fara að vinna í kvöld. Kem svo heim, sest aðeins í tölvuna og fer svo að sofa. Skóli snemma í fyrramálið og m.a.s. félagsfræðipróf! Ansans...

Heyrumst!




Athugasemdir ():