Deila á Facebook
« The Constant Gardener | Aðalsíða | Afmælisgrímupartý hjá Ingvari »

Grímupartý og fyllerí
Skrifað föstud. 3. mars 2006 - 19:29
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í dag vaknaði ég seint og fór seint á fætur. Gott að vera í fríi í skólanum.

Svo þegar ég ætlaði að drífa mig á fætur fæ ég heljar blóðnasir. Dagurinn byrjar vel. Svo fer ég að leita mér að búningi fyrir grímupartýið hjá Ingvari í kvöld en finn ekkert. Svo segi ég Ingvari að ég eigi engan búning, þá segir hann mér að vera pimp. Ég á nú pimp jakka. Þá vantaði mig bara hatt, fjaðrir og hugsanlega staf. Hann segir mér að kíkja í Partýbúðina við Grensásveg. Ég lít á klukkuna, hún er 20 min í 6 og búðin lokar 6, þannig ég dríf mig í föt og bruna niður eftir. Ég rétt næ inn og ég segi afgreiðsludömunni hverju ég er að leita að og hjálpa þau mér að finna rétta dótið. Ég fann hatt og fjaðrir, en því miður áttu þau engan staf. Ég verð víst bara að sleppa honum.

Svo fer ég upp á Hlöllabáta á Höfðanum og spyr Kollu frænka mína hvort hún eigi staf til að lána mér, en hún á engan staf. Þannig ég fer þá bara í ríkið og kaupi bjór og svo stoppa ég uppi í Bónus Video og fæ mér pylsu í kvöldmat. Svo dríf ég mig bara heim.

Núna er ég bara að fara að skella mér í sturtu og að gera mig kláran fyrir kvöldið. Spurning hvort maður finni einhver jakkaföt sem passa á mann ennþá. Ég kann heldur ekkert að gera bindishnút! Hahah.

Ég er þá bara farinn. Ég mun koma með heljar blogg um kvöldið í kvöld og slatta af myndum með, þannig segjum þetta gott í bili.

Og já, til hamingju með 21 árs afmælið, Ingvar!!!




Athugasemdir ():