Afmælisgrímupartý hjá Ingvari
Skrifað laugard. 4. mars 2006 - 15:57Ég ákvað að skrifa eitthvað um gærkvöldið. Þetta var nú ekki beint eins og ég hafði gert mér í hugarlund. Er þessi bær alveg að missa það eða?
Gærkvöldið byrjaði á því að ég fór að útrétta smá, kom við í ríkinu og keypti mér kippu af bjór og fékk mér pylsu í kvöldmatinn uppi í Bónus Video. Svo fór ég bara heim og gerði mig kláran fyrir kvöldið, fór í sturtu og dressaði mig upp í jakkaföt, setti upp sólgleraugun, hattinn og fjaðradraslið og keyrði svo til Ingvars. Ég ætlaði sko að skilja bílinn minn eftir hjá Ingvari til þess að vera með pottþétt far heim morguninn eftir.
Svo þegar ég kom inn til Ingvars, þá var lítið af fólki mætt. Aðallega fólk sem ég þekkti voða lítið. Seinna um kvöldið hrúgaðist inn fólk sem ég þekkti. Ég man ekkert eftir því hvenær við fórum niður í bæ, en það var ekkert allt of seint.
Ég, Helgi, Herdís, Halli og Edda röltum niður í bæ og ætluðum að hafa það voða gaman. Við byrjuðum á Glaumbar, en svo þegar við vorum komin inn, hurfu Halli og Edda bara. Þá höfðu þau bara farið heim. Svo fórum ég og Helgi á Gaukinn og man ég að þar týndi ég fjaðradraslinu mínu, eða gaf einhverri stelpu það.
Svo fórum við á Hlöllavagninn og fengum okkur að borða og þá hringir Herdís í Helga og segist vera að deyja hjá Gauknum. Við hlaupum náttúrulega til hennar og þar sat hún alveg að deyja. Svo fórum við bara heim.
Stuttu seinna komu Guðrún og Tara og fengu DVD myndir lánaðar hjá mér og svo fóru þær.
Í stuttu máli var þetta frekar ömurlegt kvöld en það er aldrei að vita hvort maður reyni aftur í kvöld, þar sem Helgi ætlar að djamma aftur í kvöld. Aumingja Grétar að vera í þessu ömurlega kórferðalagi og missa af öllu skemmtilega djamminu í 101!
En já, hér eru myndir frá gærkvöldinu.

Athugasemdir (