Deila á Facebook
« Afmælisgrímupartý hjá Ingvari | Aðalsíða | Góðgerðarrúntur »

Gærkvöldið - Flipp og meira flipp
Skrifað sunnud. 5. mars 2006 - 18:39
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Í gærkvöldi fór maður auðvitað aftur að djamma.

Jökull hringdi í mig kl 9 og bað mig um að gera eitthvað. Ég spurði hann hvort honum langaði að detta í það og fara niður í bæ. Hann var alveg til í það, þannig hann kom yfir til mín og við byrjuðum að drekka. Seinna bauð ég Helga í þetta "partý" sem var hérna. Hann kom með Andra, vini sínum. Seinna komu Jói Depp og Valli vinur hans, Ómar, Björgvin, Oddrún, Ívar, Hjalti, Ægir, Rebekka, Heiða og Brynhildur. Síðan fóru allir og ég, Helgi, Ívar, Hjalti og Jökull fórum niður í bæ.

Við stoppuðum fyrst heima hjá Ívari, þar sem hann kom í inniskónum. Svo eftir það fórum við á Shell í breiðholti og fengum okkur pjélsu. Ég stakk upp á Hlölla en það hlustaði enginn á mig. Svo brunuðum við niður í bæ og byrjuðum á Gauknum. Þar hitti ég Erlu. Svo fannst okkur svo leiðinlegt á Gauknum, þannig við ákváðum að fara á Glaumbar. Það var auðvitað kílómeters rauð þar, þannig við nenntum ekki að bíða eftir því, þannig við fórum á Sólon. Við hlupum alla leiðina út af því að það var ógeðslega kalt! Ég var náttúrulega bara í bol og leðurjakkanum. Svo þegar við komum að Sólon, hitti ég félaga minn Matta, sem var í dyrunum, og hleypti hann okkur þrem inn VIP megin; Mér, Helga og Jökli. Þá voru Ívar og Hjalti horfnir. Takk, Matti minn!

Við komum upp á efri hæðina á Sólon og það var mikið stuð þar. Við förum á barinn og Helgi splæsir á mig Hamborgara og bjór. Hamborgari er eitthvað skot sem er blandað úr helling af áfengi. Svo hitti ég Adda Toxa þarna og splæsir hann á mig Tópas skoti og Marlboro sígarettu. Svei mér þá, maður var bara á sopafylleríi þarna. Svo seinna ákveður Jökull að labba heim. Ég og Helgi förum bara að dansa og látum eins og fávitar þarna. Það var svei mér gaman!

Við löbbum svo yfir á Hverfis. Ég hitti ekki Sigga Svans og Dóra þar! Þeir sem eru alltaf þar! Við þurftum auðvitað fyrst að bíða í hálftíma röð þarna til að komast inn, þó það væru bara 5 í röðinni. Svona er Hverfis. Allavega, við fórum bara að dansa og eitthvað í mannþrönginni þarna. Svo vorum við allir orðnir frekar drukknir, þannig við ákváðum bara að fara heim. Helgi hringir í Herdísi, fyrrverandi kærustuna sína, og biður hana um að koma að sækja okkur. Hún býðst til þess og segir okkur að hitta sig á Aktu Taktu.

Á leiðinni á Aktu Taktu, lentum við í svo miklu rugli. Ég sá póstkerru þarna og leiddi hana svona niður götuna. Þá kemur Ívar alveg blindfullur og hleypur á kerruna, dettur og sullar öllum bjórnum sínum á kerruna. Svo erum við bara að labba þarna í rólegheitum niður götuna í gúddí fíling með póstkerruna. Svo lít ég upp í götuna og þar sé ég póstmanninn horfa á okkur. Ég öskra: "HLAUPUM!" og við hlaupum allir í krampakasti niður götuna. Ha ha ha, ég hef sjaldan lent í meiri snilld. Svo förum við inn á Aktu Taktu planið og á meðan við vorum að bíða eftir Herdísi, ákveðum við að gera eitthvað af okkur. Það sem við gerðum af okkur verður ekkert nefnt hér.

En svo kom Herdís loksins og við stauluðumst inn í bílinn. Svo skutlaði hún Ívari heim og djöfull var hann fullur! Haha, á leiðinni tók hann hauspúðana af og fór eitthvað að hlæja og setti poka á hausinn á sér og hagaði sér eins og fífl. En það var bara fyndið! Við vorum öll í krampa þarna. Svo fer Ívar heim og Helgi og Herdís skutla mér heim.

Það rættist bara helvíti vel úr þessu kvöldi! Ég sé allavega ekkert eftir því að hafa farið niður í bæ, nema það að Jökull fór svolítið snemma! En það er ekkert hægt að gera í því núna. Greyið kallinn var orðinn svo þreyttur, þannig hann labbaði bara heim.

Allavega, segjum þetta ágætt. Myndirnar frá kvöldinu eru hérna!




Athugasemdir ():