Góðgerðarrúntur
Skrifað sunnud. 5. mars 2006 - 22:07Ég var núna að enda við að taka þátt í góðgerðarrúnti vegna alvarlegra umferðarslysa í gegnum tíðina. Ég er í bílaáhugamannaklúbb sem heitir Live2Cruize og að sjálfsögðu styrkti ég gott málefni. 

Ég lagði af stað klukkan 19:00 og var kominn á Hafnarbakkann kl 19:20, þar sem löng biðröð bíla beið. Lögreglumaður benti mér á hvar ég ætti að vera og hlýddi ég honum. Svo var beðið þangað til klukkuna sló 8 og þá var lagt af stað. Keyrt var með lögreglufylgd frá Hafnarbakkanum og út alla Sæbrautina. Allir sem voru í þessum góðgerðarrúnti voru á hægri akrein og með hazard ljósin kveikt. Svo var keyrt upp að brúnni í Ártúnsbrekkunni. Þar fórum við svo upp á Miklubrautina/Ártúnsbrekkuna og svo aftur niður að bænum. Svo var keyrt aftur út Sæbrautina og svo lagt hjá Heimilistækjaplaninu og Nýherja. Ég keyrði bara áfram og fór bara heim. Það var of kalt úti til þess að ég gæti höndlað það að vera úti.
Ég vil bara votta aðstandendum fórnarlambanna í þessum slysum, mína dýpstu samúð.

Tekið af Live2Cruize.com
Ástæða þess að við stöndum að þessu í kvöld:
Mikið hefur borið á mjög alvarlegum slysum síðastliðin misseri og virðist ekkert lát ætla að verða á. Það þarf ekki lengra að leita en í síðustu vikur til að finna þrjú skelfileg dauðaslys og aðeins eru tveir mánuðir búnir af þessu ári.
Við höfum því ákveðið að koma saman sem einn hópur til að minnast þeirra sem látið hafa lífið í umferðarslysum síðastliðin ár og einnig að berjast fyrir áhugamáli sem okkur er kært.
Það sem við viljum vekja athygli þjóðarinnar á er þetta:
• Hræðsluáróðursherferðir í fjölmiðlum eru ekki að gera sitt gagn. Fara þarf allt aðra leið í auglýsingamálum ef hafa á áhrif á unga ökumenn og aðra landsmenn.
• Lækkun hraða á vegum borgarinnar er ekki ásættanleg lausn til að sporna við slyum og til að reyna að stöðva hraðafíkn ökumanna. Það hefur sýnt sig í nágrannalöndum að þessar aðferðir eru ekki að gera sig og munu væntanlega hafa lítið að segja hér á landi.
• Kennsla ungra ökumanna er á engan hátt fullnægjanleg og þarf all verulega að bæta ef vel skal gera. Þar má helst nefna að ungir ökumenn virðast hafa litla sem enga þekkingu á utanbæjarakstri og hvernig skuli bregðast við í hinum ýmsu aðstæðum. Þarna kemur skýr þörf fyrir akstursvæði, þar sem hver nemandi væri skildugur að klára ákveðna þjálfun áður en próf er veitt.
• Þörf er á svæði þar sem bíla- og hjólaáhugamenn geta fengið útrás fyrir hraðaþörf sína, ásamt þeirri þörf að prufa hvað bílarnir þeirra geta. Þessi braut myndi einnig gera það að verkum að ökumenn geta lært á sín tæki sem gerir þá mun öruggari í umferðinni.
• Taka þarf verulega á umferðarhegðun landsmanna, m.a. þarf að taka upp sektarkerfi fyrir þá sem eru verulega undir hámarkshraða á vinstri akrein. Þannig aksturslag veldur því aðeins að menn eru æðandi á milli akreina til að umferð geti haldið eðlilegum aksturshraða.
Mikil þörf er á akstursbraut og kennslusvæði hér á landi. Uppbygging af þessu tagi kostar auðvitað mikla peninga og þurfa ráðamenn þjóðarinnar að opna augun fyrir þessum vanda. Ómældir peningar renna í önnur áhugamál til uppbyggingar og endurbóta, á meðan akstursíþróttamenn hafa litla sem enga aðstöðu til að sinna sínum áhugamálum. Á meðan engin svæði eru fyrir þetta áhugamál, virðast götur borgarinnar verða fyrir valinu, oft með skelfilegum afleiðingum
Það er því okkar einlæga ósk að einhverjar framfarir verði í þessum málum.
Þeir sem koma að þessarri athöfn í kvöld eru:
Live2Cruize
BMWKraftur
Kvartmíluklúbburinn
Fornbílaklúbburinn
Sniglarnir
Stjarnan
Blýfótur
TeamGDZ

Athugasemdir (