Deila á Facebook
« Góðgerðarrúntur | Aðalsíða | Bíó og rúntur »

Óvenju hress á mánudegi!
Skrifað mánud. 6. mars 2006 - 12:42
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Þegar ég hef engan titil fyrir bloggfærslurnar mínar, þá vel ég alltaf bara titil eins og "Jamm og já" eða eitthvað álíka innihalds- og merkingarlaust. Þó ég reyni nú að hafa titilinn eitthvað sem snertir innihaldið í bullinu mínu. En hvað er málið með mig og blogg? Ég geri ekki annað en að dæla inn þvælu og rugli hingað inn. Ég get ekki hætt að blogga. Stundum blogga ég oftar en einu sinni á dag. Þó ég reyni nú að halda mig við eina færslu á dag. Stundum hefur maður bara ekkert að segja. En það gleður mig samt að einhver nenni að lesa þetta.

Allavega, ég fór kl 1 að sofa í nótt en náði ekki að sofna neitt. Ég held ég hafi náð í mesta lagi 1-2 tíma svefni. Samt er ég alveg ótrúlega hress og sprækur á miðað við að hafa sofið svona lítið. Ég allavega náði að vakna í skólann í morgun! Ég er algjör hetja. Vaknaði kl 7:40 en slökkti á KoRn garginu og fór aftur upp í rúm en náði ekki að sofna, þannig ég fór bara á fætur. Ef ég næ ekki að sofna í nótt þá efast ég um að ég verði jafn hress og ég var í morgun.

Allavega, ég dreif mig í skólann þegar klukkuna vantaði 10 min í tíma. Auðvitað þurfti ég að vera á síðustu stundu að laga hárið. Það er svo erfitt að hafa hemil á því þegar það er orðið svona sítt. Ég náði samt að mæta á réttum tíma. Þegar ég geng inn, skelli ég töskunni á borðið og segi: "hillú" við Katrínu Birnu og hún segir eitthvað: "Þú veist að það er mánudagur. Það er bannað að vera svona hress á mánudögum". Hahaha, bara fyndið.

En allavega, ég er bara heima núna og er að bíða eftir því að fara í opinn dauðann, þ.e.a.s. íslenskutíma. En ég á ábyggilega eftir að lifa það af.

Í gær þá fór ég að horfa á sjónvarpið þangað til ég fór að sofa, og komst að því að við erum með allar rásirnar á digital ísland, sem við vorum ekki með um daginn. Hvað gerðist? Varð allt í einu bara einhver voða góður og ákvað að gefa okkur allar rásirnar? Ég allavega var bara að horfa á MTV, VH1 og eitthvað, þar sem það er nú ekki mikið annað spennandi á þessum stöðvum. En ef þú, gjafmildi félagi, sem gafst mér allar rásirnar, ert að lesa þetta, þá gleymdiru að aflæsa bláu rásinni! Hehe, segi svona.

Allavega, í kvöld er ég að fara á stefnumót með söngkonunni í Igore! Í fyrsta skipti í langan tíma, ég á stefnumót. Það verður eitthvað kózý, eins og t.d. bíó og svo bara rúntur eftir það. Kannski maður kíki ekki bara á snillinginn Steve Martin, sem leikur aðalhlutverkið í Pink Panther.

Segjum þetta ágætt í bili.




Athugasemdir ():