Bíó og rúntur
Skrifað þriðjud. 7. mars 2006 - 00:38Ég skrapp í bíó með Rakeli, vinkonu minni, í kvöld. Við áttum frímiða í hvaða bíó sem er og á hvaða mynd sem er, þannig við ákváðum að skella okkur. Einnig gerum við svo sjaldan hluti saman, þannig við ákváðum að bæta úr því.

Við fórum og sáum myndina Pink Panther, með Steve Martin og Beyoncé Knowles í aðalhlutverki. Ég verð nú bara að segja að þessi mynd er alveg fín. Ég gef henni 2 stjörnur og hálfa stjörnu bara fyrir effortið, af 5 mögulegum. Hálf barnalegir aulabrandarar í myndinni, en hún er fín.
Hún fjallar um lögreglumanninn Jacques Clouseau, sem er leikinn af Steve Martin. Hann er hækkaður í tign upp í einkaspæjara til þess að góma morðingja og demantsþjóf, og það gerist ýmislegt á meðan hann vinnur í málinu.
Svo eftir bíóið, þurfti Rakel að fara með sígarettur, nammi og mat til frænku sinnar og vinkonu hennar, sem eru að vinna í fatahenginu á Hótel Borg, og gerðum við það að sjálfsögðu. Stoppuðum á Aktu Taktu og keyptum allt dótið og svo fórum við Hótel Borg. Þar var víst einhver árshátíð hjá Sólon, Thorvaldsen ofl. skemmtistöðum og stoppuðum við örstutt þar. Rakel var boðið bjór og skot og þáði hún það auðvitað.
Svo fórum við bara að rúnta smá og spjölluðum heillengi saman.
Takk æðislega fyrir kvöldið, Rakel.
Við verðum að endurtaka þetta fljótlega! 

Athugasemdir (