Deila á Facebook
« Smá viðbætur ofl. | Aðalsíða | Helgin »

Jólin að koma? Ekki alveg!
Skrifað laugard. 29. október 2005 - 04:25
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Meira ruglið. Ég heyrði fyrstu jólaauglýsinguna í útvarpinu í morgun. Er ekki í lagi? Það er 29. október! Ég er allavega ekki kominn í neitt jólaskap.

Allavega, ég var í félagsfræðiprófi í dag. Ég las nú ágætlega fyrir það, enda gekk mér bara mjög vel. Í ritgerðarspurningunni, skrifaði ég hvernig kvenskoðun fer fram.

Eftir skólann, fór ég bara heim. Settist við tölvuna og kveikti á henni. Kemur ekki bara BSOD (Blue Screen of Death)! Djöfulsins drasl. Ég reyndi að gera repair á Windowsið en nei nei, það gekk ekkert þannig það var ekki séns að ég gat farið inn í Windowsið. Ég fór bara inn í það í gegnum Safe Mode, backupaði allt og formataði svo og setti allt upp aftur. Meira vesenið! Eftir það lagði ég mig í 3 klst.

Ég náði í nýja Rammstein diskinn áðan. Hann er algjör snilld! Hann heitir Rosenrot og mæli ég sterklega með honum!

Ég kom kl sirka 12 heim í dag, fékk mér ekkert að borða og beið bara þangað til kvöldmaturinn var tilbúinn. Ég beið til 8 eftir kvöldmatnum og þá var það eitthvað ógeð sem mamma ákvað að gera eftir Jóa Fel. Það var reyndar bara forrétturinn, en aðalrétturinn var mjög góður. Það voru kjúklingabringur vafðar með skinku og svo kryddjurtir inni í þeim. Rosalega gott.

Ég fór í bíó í kvöld á myndina The Exorcism of Emily Rose. Hún er alveg svakaleg á köflum! Rosalega spooky. Ég bauð Guðrúnu vinkonu minni með mér á hana. Grétar skutlaði okkur og vil ég þakka honum kærlega fyrir það. Eftir bíóið höfðum við ekki gert neinar ráðstafanir með far heim þannig ég hringdi í Dofra vin minn og kom hann og sótti okkur. Vil ég einnig þakka honum kærlega fyrir það. Þið eruð frábærir!

Allavega, ég er fullur (eins og alltaf) og er bara að fara að henda mér í rúmið. Ég er að spá í að horfa á The Amityville Horror með Guðrúnu á morgun. Okkur langar báðum geðveikt mikið að sjá hana. Vinkona Guðrúnar horfði á 15 min af henni og gat ekki meira. Ég held ég þoli hana alveg.

En allavega er veturinn kominn og verð ég að fara að drífa mig í að umfelga og henda nagladekkjunum undir bílinn. Þetta gengur ekki lengur.

Ákvað að leyfa ykkur að ná í lag sem ég er að spila mjög mikið núna. Daniel Powter - Bad Day

Góða nótt, englar.




Athugasemdir ():