Opinber afsökunarbeiðni
Skrifað þriðjud. 7. mars 2006 - 21:58Ég á það til allt of oft að gera eitthvað heimskulegt og hugsa svo eftir á og sjá eftir því sem ég gerði. Ég hata að geta ekki hugsað áður en ég geri heimskulega hluti!
Allavega, í gærkvöldi sendi ég Jökli, vini mínum, þar sem ég lét sendandann vera "Beta", sem er kærastan hans. Í sms'inu stóð: "Eg er buinn ad halda fram hja ther med Gaua. Eg gat bara ekki haldid thessu leyndu fyrir ther endalaust. Sorry! :-(". Þetta átti að fara þannig, að hann átti að hringja í mig strax og öskra: "Varstu að halda fram hjá með Betu?" og þá ætlaði ég að segja honum þetta allt saman, en nei nei, hann hringdi strax og spurði hvort ég hefði verið að senda þetta og auðvitað sagði ég nei!
Ég hefði auðvitað átt að segja honum þetta allt en ég gerði það ekki. Lét bara eins og hann hefði vakið mig og ég vissi ekki neitt í minn haus. Heimski ég! 
Svo áðan komu þau brjáluð á msn bæði tvö og sökuðu mig um að gera þetta. Ég taldi mig hafa falið slóð mína nógu vel og neitaði allri sök, en auðvitað var það hvernig ég skrifa sms, sem kom upp um mig! Ég ætla aldrei aftur að gera hrekki, þar sem þeir misheppnast alltaf og ég enda með það að missa vini mína!
Þetta var komið út í svo stóran lygavef að ég var byrjaður að fela þetta fyrir öllum. Þetta orsakaði það að núna eru allavega 3 manneskjur bálreiðar út í mig. Það er auðvitað Jökull, þó ég haldi nú að hann sé sneggstur að fyrirgefa mér, þar sem hann veit að ég á erfitt með að hugsa áður en ég framkvæmi heimskulega hluti. Svo er það auðvitað Beta, þetta grín átti ekki að snerta hana neitt, en auðvitað gerðist það, og núna er allt í rugli. Og svo er það Guðrún. Ég faldi þetta líka fyrir henni, þar sem hún og Beta eru bestu vinkonur og ég óttaðist að hún myndi segja Betu þetta ef ég myndi segja henni þetta.
Allavega, ég vil nýta tækifærið til að biðja þessar 3 manneskjur afsökunar og fyrirgefningar.

En allavega, mamma og pabbi komu heim áðan og gáfu þau mér 60 GB iPod Video!
Takk, mamma og pabbi, og velkomin heim! 

Athugasemdir (