Deila á Facebook
« Góð spurning | Aðalsíða | Brjálað að gera »

Ég á ekki orð!
Skrifað föstud. 10. mars 2006 - 00:14
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég á ekki orð yfir því hvernig hægt er að gera þetta!

Vinur mitt átti kærustu. Fyrir nokkrum dögum hætti hún með honum. Svo nokkrum dögum seinna kom hann að henni og besta vini sínum saman í rúminu!

HVAÐ ER AÐ?!?!?!?!

Vá, ég hef aldrei séð vin minn svona sorgmæddan. Þegar ég frétti þetta þá var ég ekkert að pæla mikið í þessu en ég var mjög sorgmæddur fyrir hans hönd. Svo núna áðan var ég að keyra úr vinnunni og fór að hugsa út í þetta og það var eitthvað vælulag með Westlife í útvarpinu og vááá, fékk alveg hroll út um allan líkamann og svo féllu tár.

En ég vil að þessi vinur minn viti það að ég er alltaf til staðar fyrir hann.

Úr leiðindum og yfir í önnur leiðindi.

Það kom strákur upp í Bónus Video í kvöld og var að taka einhverja nýja mynd og fékk gamla frítt með. Svo fundum við ekki gömlu spóluna, þannig hann fór að fara fram á skaðabætur og eitthvað rugl. Svo sagði hann eitthvað: "Hvernig ætlið þið að bæta mér það upp að spólan sem ég var búinn að velja sé ekki inni.". Ég sagði honum bara að við gætum ekkert bætt honum það neitt upp. Hann yrði bara að velja sér aðra spólu. Er fólk virkilega orðið svona í dag? Skaðabætur fyrir að spóla sé ekki inni? Hversu vitlaust er fólk orðið?

Svo um daginn kom einhver umræða á barnaland frá konu sem var að versla í Bónus Video í Spönginni og hún fékk ekki afgreiðslu strax og svo var afgreiðslumaðurinn geðveikt dónalegur við hana og eitthvað. Þetta var sko ekki ég! Svo sagði hún: "Þetta er víst nýja stefnan hjá Bónus Video". Er ekki í lagi?! Þó að einn starfsmaður í einni verslun sé dónalegur, þýðir ekki að allir séu það. Ég þoli ekki svona snobb pakk.

Svo sagði hún eitthvað: "Það er eins og maður sé alltaf að trufla fólkið sem vinnur þarna við það að gera ekki neitt. Það er annað hvort að borða pylsu eða ís eða eitthvað". Vá hvað þessi kona er vitlaus! Eigum við sem sagt að bíða með hendur á bak við bak eftir því að við getum afgreitt? Váá! Svona fólk gerir mig svo pirraðan! Megum við sem sagt ekki borða ís eða pylsur í vinnunni? Eigum við bara að vera aðgerðarlaus og svelta til dauða á meðan við bíðum eftir að kúnnarnir vilji láta afgreiða sig? Ef ég er að borða ís eða pylsu eða eitthvað og svo kemur kúnni, auðvitað legg ég draslið frá mér og fer og afgreiði kúnnann, nema auðvitað að hinn starfsmaðurinn afgreiði hann fyrir mig, svo ég þurfi ekki að hætta að borða á meðan. Fólk þarf aðeins að passa hvað það segir á opinberum vettvangi, þar sem slík orð særa hina sem standa sig vel!

Ég hef ekki fleira að segja í bili. Takk.




Athugasemdir ():