Deila á Facebook
« Ég á ekki orð! | Aðalsíða | Google Analytics »

Brjálað að gera
Skrifað föstud. 10. mars 2006 - 14:25
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, í gærkvöldi kom Gugga til mín og gisti hjá mér. Svo í morgun átti ég að mæta í skólann kl 8, en auðvitað mætti ég ekkert fyrr en 11.

Svo var auðvitað próf í sálfræði í dag og gekk mér bara mjög vel á því prófi.

Svo núna um helgina verður brjálað að gera! Ég var að vinna í gær, svo er ég aftur að vinna í kvöld og á sunnudaginn, eins og alltaf. En svo er ég að fara að taka aukavakt á morgun frá 10-6. Þannig það verður bara farið snemma að sofa í kvöld. Ég er ekki vanur að vinna á laugardögum en ákvað að gera það í þetta skiptið fyrir Stulla, þar sem hann hefur átt mjög erfitt og vil ég ekki að hann þurfi að taka þessa vakt sjálfur, þar sem hann vinnur nógu mikið nú fyrir.

Allavega, núna er ég bara að taka því rólega áður en ég fer að vinna kl 6. Svo eftir vinnu er það kannski bara video eða eitthvað rólegt og svo bara snemma að sofa.

Svo auðvitað er allt brjálað að gera í næstu viku, þar sem það er sögupróf á mánudeginum og svo þarf ég að skila heimildarritgerð í íslensku um samkynhneigð á mánudeginum líka. Ég verð m.a.s. að skila heimildarritgerðinni einum degi of seint, þar sem ég hef engan tíma til að gera hana núna um helgina. Ég er búinn að plana að gera hana á mánudaginn, þar sem Dofri, vinur minn, ætlar að hjálpa mér við að gera hana. Takk, Dofri minn.

En þið hin, ekki eigið þið einhverja heimildarritgerð handa mér, svo ég þurfi nú ekki að gera mína eigin?

Svo langar mig að ræða svolítið alvarlegt mál, sem mörg af ykkur eflaust kannist við. Finnst ykkur ekki æðislegt þegar foreldrar ykkar horfa á einhvern þátt í sjónvarpinu um sígarettur, gosdrykki, tölvunotkun ofl. og byrjar svo að röfla í ykkur um skaðsemi sígaretta, skaðsemi gosdrykkja og of mikla tölvunotkun, eða eitthvað því um líkt. Ég alveg elska þetta!
Um daginn var mamma að horfa á einhvern þátt í sjónvarpinu um það að ein gosflaska á dag geti orðið til þess að maður þyngist um 10 kg. á hverjum mánuði eða eitthvað. Vá, ég sem er alveg að springa úr fitu, þarf einmitt að hafa svo miklar áhyggjur af þessu.
Svo var einhver umfjöllun um tölvu"fíkn" í fréttunum í gær. Auðvitað þarf mamma að horfa á það og koma svo til mín og segja: "Hefur það aldrei hvarflað að þér að þú sért orðinn tölvufíkill?". Hefur það aldrei hvarflað að mér? Jú jú, það hefur nefnilega oft hvarflað að mér og veit ég það vel að ég er tölvufíkill. Ég nýt þess samt!

Skemmtilegt þetta. Kannski er þetta bara umhyggjusemi foreldranna, en ég veit ekki.




Athugasemdir ():