Deila á Facebook
« Google Analytics | Aðalsíða | Ávísunin leyst út - Lukkunnar pamfíll? »

Afmælispartý Herdísar - 50.000 kr. ríkari?
Skrifað sunnud. 12. mars 2006 - 17:41
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Ég bara verð að skrifa um helgina!

Á föstudeginum var bara ekkert að gerast. Ég var bara að vinna og svo fór ég bara heim að sofa. Svo vaknaði ég kl hálf tíu næsta morgunn og fór beint að vinna. Svo var ég búinn að vinna kl 6 en losnaði ekkert fyrr en hálf 7, út af því að fólkið mætti of seint og ég þurfti að gera upp kassann eftir vaktina. Asnalegt að þurfa að gera upp kassann á milli vakta. Svo fór ég bara til Guggu og lét hana fá eina DVD mynd sem hana langaði að sjá, þar sem hún var bara veik heima.

Svo dreif ég mig heim og tók mig til fyrir afmælið hennar Herdísar. Svo komu Rakel og Eygló til mín og við byrjuðum að drekka. Svo keyrði Eygló í afmælið og skildi bílinn bara þar eftir. Sem minnir mig á það! Ég á bjór í bílnum hennar! Allavega, það var mikið af fólki sem mætti í afmælið. Ég ætla að reyna að telja alla upp: Ég, Helgi, Herdís, Grétar, Ómar, Rebekka, Oddrún, Heiða, Jói Depp, Hjalti, Ívar, Karen, Valentína, Palli, Bjarni, Valdís, Rakel, Eygló, Björgvin, Ingvar, Jökull, Beta, og eflaust einhverjir fleiri.

Eftir marga tíma í frábæru partýi, þar sem drama'ið og trúnóið hafði völdin, ákváðu allir að fara niður í bæ. Ég, Helgi, Herdís og Ingvar fengum auðvitað far með Grétari. Við brunuðum niður í bæ og byrjuðum á því að fá okkur pylsu á Bæjarins Bestu. Ég man eftir einu atviki á BB þegar ég kallaði Helga óvart Ingvar, og þá kýldi Helgi mig fast í magann og ég man eftir því að hafa sagt: "Mig langar allavega ekki í pylsu lengur" en svo fékk ég mér pylsuna eftir að ég var búinn að jafna mig. Ég veit að þetta var ekkert illa meint hjá honum. Svo löbbuðum við á Hressó til að Helgi gæti hitt systir sína, en hún svaraði honum ekki, þannig við ákváðum bara að labba yfir á Sólon á meðan Helgi var að reyna að ná í systir sína. Svo þegar við komum á Sólon, hleypti Matti mér inn. Takk, Matti minn.

Á Sólon hitti ég Live2Cruize fólkið Ingu, Steina, Geir, Adda, Eika og Danna. Þau voru bara eitthvað að dansa saman þarna og kíkti ég á þau. Þau buðu mér þá í villtan dans sem var mjög skemmtilegur. Svo seinna fór ég niður með Rakeli og Valdísi og við fórum bara eitthvað á trúnó. Svo fór Rakel, þannig ég og Valdís vorum bara ein eftir. Við fórum þá bara aftur upp að dansa. Ég fór til Grétars og þeirra. Þeir voru þarna inni í miðri þvögunni að dansa. Svo þegar við urðum þreyttir á Sólon, fórum við út.

Við kíktum þá á Gaukinn. Þar var stappað í krökkum eins og vanalega. Þar hittum við Odd, bróðir hans Grétars, og Agnesi, kærustu Odds. Oddur er ekkert smá skemmtilegur á djamminu. Hann sagði okkur að koma á dansgólfið og dansa við stelpurnar. Haha, ekkert smá fyndið. Flott move, Oddur.
Það var einhver gaur að bögga einhverjar stelpur þarna, með því að dansa geðveikt utan í þeim og vilja ekki fara þegar þær báðu hann um það. Oddur hrinti honum þá og þá kom gaurinn til baka og ég hrinti honum aftur. Þá komu einhverjir bavíanar á milli okkar og stoppuðu okkur. En gaman! Svo hitti ég Svavar og Óla linsu þarna.

Svo nenntum við ekki að vera á þessum skítastað, þannig við ákváðum að fara inn á Glaumbar. Þar var stappað á dansgólfinu, eins og alltaf. Svo á meðan við vorum að dansa, voru einhverjir gaurar með einhverja stæla með því að ýta okkur. Ívar byrjaði þá að dansa eins og fífl og að lokum fóru þeir. Svo kom annar gaur og byrjaði að hoppa á allt og alla og var með rosalega mikla stæla. Þá fór einhver gaur og tók í hann en þá kýldi gaurinn hann og þá réðust allir dyraverðirnir á hann. Þeir voru fjórir á honum einum og þeir áttu í mjög miklum erfiðleikum með að halda honum. Ég held að gaurinn hafi verið á einhverju.

Svo eftir þetta fórum við aftur á Sólon og hittum þar Gumma, en þá var stemmningin dauð, þannig við ákváðum bara að fara heim. Ég og Grétar röltum bara í átt að bílnum. Hjá Bæjarins Bestu voru einhverjir Grafarvogsdrengir sem við þekktum; Sindri, Steinar og einhver. Þeir voru með einhverjum gömlum karli og báðu okkur um að skutla sér heim. Gamli karlinn bauð Grétari pening fyrir að skutla sér heim. Fyrst bauð hann honum 10.000 kr. Þegar Grétar sagði nei við því, fór hann í 20.000, næst í 50.000 og að lokum 100.000. Gamli ætlaði að láta Grétar fá ávísun, en Grétar treysti því ekki, þannig þeir fóru að reyna að millifæra peninginn í gegnum síma, en það tókst ekki.

Þá bauð gaurinn okkur heim til sín. Á leiðinni heim til hans sagði hann okkur að hann ætlaði sko að borga Grétar 100.000 kallinn fyrir að vera svona harður á sínu. Svo sagði hann okkur að hann væri nýbúinn að kaupa græjur fyrir 700.000 og allt plötusafnið með Johnny Cash. Við héldum að hann væri að ljúga þessu, en nei nei, þegar við komum heim til hans voru græjur fyrir 700.000 kr. liggjandi á stofugólfinu hjá honum og allar plöturnar með Johnny Cash á borðinu hans. Þá vissum við að þessi gaur væri sko ekkert að djóka. Því næst bauð hann okkur bjór og þáðum við það.

Svo fóru Grétar og hann inn í eitthvað herbergi þar sem nettengd tölva var. Gamli skráði sig þá inn á netbankann sinn og sýndi okkur innistæðuna á reikningunum sínum. Hann var með einhverja 15-20 reikninga og inni á einum voru 36 milljónir kr. og inni á öðrum voru 10 milljónir króna. Því næst millifærði hann 100.000 kr. á Grétar! Svo fórum við inn í eldhús og þá dró hann upp ávísanaheftið og skrifaði ávísun upp á 50.000 kr. handa okkur öllum. Sitthvora ávísunina! Við trúðum ekki okkar eigin augum! Gamli karlinn sagði bara að honum finndist gaman að gera þetta, þar sem hann á nóg af peningum. Hann sagði líka eitt sem okkur fannst mikil speki í: "Lífið er eitt og peningar eru annað. Ekki blanda því saman.".

Ég bað gamla um að vera afi minn, þar sem ég væri búinn að missa tvo afa og sagðist hann auðvitað geta verið afi minn. Svo kvöddum við gamla og fórum bara heim.

Myndirnar frá helginni eru komnar og má finna þær hér!

Og já, til hamingju Herdís og Eygló með afmælið!




Athugasemdir ():