Deila á Facebook
« Jólin að koma? Ekki alveg! | Aðalsíða | Klukk...? »

Helgin
Skrifað sunnud. 30. október 2005 - 17:58
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Jæja, ég var að enda við að klára vöfflur sem mamma var svo elskuleg að baka fyrir mig. Ég get svo sem sagt að helgin hafi bara verið ágæt. Á miðað við margar aðrar helgar.

Í gær, laugardaginn 29. október, svaf ég lengi og vaknaði seint (eins og alltaf). Ég var bara heima að gera ekki neitt til 11. Svo fór ég upp í Bónus Video að skila The Amityville Horror. Eftir það langaði mig í bæinn að drekka, en enginn nennti með mér og ég nennti ekki einn aftur!
Þannig ég fór bara aðeins að rúnta. Um leið og ég kem upp á Höfða, sé ég helling af bílum á Húsgagnaplaninu að vera að leika sér að spóla og drifta í snjónum. Ég kíki við og horfi um stund á alla vera að djöflast. Svo fer ég og leik mér aðeins á mínum. Djöfull var það gaman! Þetta fór kvöldið í! Ég var þarna til 4 um nótt. Varð bensínlaus þannig ég fór og fyllti bílinn af bensíni og kom svo aftur þarna.

Seinna komu Jökull, Danni, Beta og Guðrún þangað. Jökull fór að sjálfsögðu að leika sér líka á bílnum sínum.
Kl 4, langaði mig heim að horfa á The Amityville Horror en enginn nennti með, nema Guðrún. Þannig við fórum bara heim til mín og horfðum á hana. Ég verð nú að segja að hún er helvíti scary. "Catch 'em - Kill 'em".

Svo þegar myndin var búin, var klukkan orðin svo margt þannig ég leyfði bara Guðrúnu að gista hjá mér. Ég er nú með kingsize rúm þannig við komumst alveg bæði fyrir í því og það er ekki eins og hún hafi aldrei gist hjá mér áður. Svo núna kl sirka 5, vöknuðum við og ég skutlaði henni heim.

Núna sit ég bara hérna og er að spjalla við vinina á MSN. Ég er að spá í að fara að vinna smá í meistaraverkinu mínu og fara svo kannski að læra smá fyrir skólann.

Ciao!




Athugasemdir ():