Ávísunin leyst út - Lukkunnar pamfíll?
Skrifað mánud. 13. mars 2006 - 10:05Ég er búinn að leysa út 50.000 kr. ávísunina. Þið sem vitið ekki hvað ég er að tala um, getið lesið áfram.
Á laugardaginn fórum við á djammið. Eftir djammið hittum við Grafarvogsdrengi hjá Bæjarins Bestu sem við þekktum; Sindri, Steinar og einhver. Þeir voru með einhverjum gömlum karli og báðu okkur um að skutla sér heim. Gamli karlinn bauð Grétari pening fyrir að skutla sér heim. Fyrst bauð hann honum 10.000 kr. Þegar Grétar sagði nei við því, fór hann í 20.000, næst í 50.000 og að lokum 100.000. Gamli karlinn ætlaði að láta Grétar fá ávísun, en Grétar treysti því ekki, þannig þeir fóru að reyna að millifæra peninginn í gegnum síma, en það tókst ekki.
Þá bauð gaurinn okkur heim til sín. Á leiðinni heim til hans sagði hann okkur að hann ætlaði sko að borga Grétar 100.000 kallinn fyrir að vera svona harður á sínu. Svo sagði hann okkur að hann væri nýbúinn að kaupa græjur fyrir 700.000 og allt plötusafnið með Johnny Cash. Við héldum að hann væri að ljúga þessu, en nei nei, þegar við komum heim til hans voru græjur fyrir 700.000 kr. liggjandi á stofugólfinu hjá honum og allar plöturnar með Johnny Cash á borðinu hans. Þá vissum við að þessi gaur væri sko ekkert að djóka. Því næst bauð hann okkur bjór og þáðum við það.
Svo fóru Grétar og hann inn í eitthvað herbergi þar sem nettengd tölva var. Gamli skráði sig þá inn á netbankann sinn og sýndi okkur innistæðuna á reikningunum sínum. Hann var með einhverja 15-20 reikninga og inni á einum voru 36 milljónir kr. og inni á öðrum voru 10 milljónir króna. Því næst millifærði hann 100.000 kr. á Grétar! Svo fórum við inn í eldhús og þá dró hann upp ávísanaheftið og skrifaði ávísun upp á 50.000 kr. handa okkur öllum. Sitthvora ávísunina! Við trúðum ekki okkar eigin augum! Við bjuggumst við að fá ekki neitt. Gamli karlinn sagði bara að honum finndist gaman að gera þetta, þar sem hann á nóg af peningum. Hann sagði líka eitt sem okkur fannst mikil speki í: "Lífið er eitt og peningar eru annað. Ekki blanda því saman.".
Þannig núna er ég 50.000 kr. ríkari!

Athugasemdir (