Deila á Facebook
« Ávísunin leyst út - Lukkunnar pamfíll? | Aðalsíða | Rólegur þriðjudagur »

Ritgerð, afmæli ofl.
Skrifað þriðjud. 14. mars 2006 - 19:37
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Mér tókst að klára þessa blessuðu 6 bls. ritgerð fyrir íslensku. Ég skrifaði m.a.s. 7 bls.

Ég fór heim til Dofra, vinar míns, í gær, þar sem hann ætlaði að hjálpa mér að finna heimildir ofl. fyrir ritgerðina mína um samkynhneigð, sem ég átti að skila fyrir íslensku í dag. Ég lagði af stað til hans kl 6 og kláruðum við kl sirka 1 um nótt. Þá fór ég bara heim og fór beint að sofa. Takk, Dofri minn, fyrir alla hjálpina!

Svo vaknaði ég kl 8 í morgun og fór í skólann. Fór í íslensku og skilaði ritgerðinni. Svo eftir tíma fór ég í World Class og þar var sko tekið á því. Svo fór ég bara heim að sofa. Svo var frí í sögu hjá Sigga, þannig ég fékk að sofa aðeins lengur og svo mætti ég í sálfræði. Það var frí í kór, þannig eftir sálfræði fór ég í tölvufræði, sem ég hef ekki mætt í heillengi. Ég kann þetta allt. Þ.e.a.s. gagnasafnsfræði (SQL (Structured Query Language). Svo fór ég bara heim.

Svo þegar ég kom heim skellti ég mér bara í tölvuna á meðan mamma var að elda matinn. Svo núna var ég bara að klára að borða. Ég lofaði víst Örnu í gær að fara út að rúnta með henni og vinkonu hennar, Láru, þannig ég stend við það.

Allavega, ég er búinn að vera að berjast við það sl. vikur að reyna að hætta að drekka kók. Það er ekkert smá erfitt! Ég fékk mér eina í dag en bara eina! Ég drekk svo bara Kristal og Frissa Fríska. Ég fer ekki yfir eina kók á dag og drekk helst minna en það, en þetta er svo rosalega erfitt en ég ætla sko að hætta!

Ég hef fátt annað að segja en það að ég er að fara í afmæli til Erlu og Huldu núna næstu helgi. Þá verður auðvitað feitt djamm, þar sem ég er í fríi þá helgi. Ég ætla líka að taka myndavélina hans pabba með til þess að taka myndir í góðum gæðum, þar sem myndirnar sem ég hef verið að taka á símann minn, eru ekkert til að hrópa húrra fyrir.

En núna ætla ég að skella mér í sturtu og kíkja svo á rúntinn. Ciao!




Athugasemdir ():