Ekki vekja mig!
Skrifað föstud. 17. mars 2006 - 00:04Jæja, ég fór bara í skólann í dag og svo eftir skóla fór ég bara heim að sofa. Grétar hringdi svo og vakti mig og bað mig um að koma upp í skóla, þar sem hann var rafmagnslaus. Ég auðvitað dreif mig til hans til að bjarga honum. Hvað gerir maður ekki fyrir VINI sína? 
Svo fór ég bara heim, fór í sturtu og gerði mig kláran fyrir vinnuna. Þá hringir Grétar aftur í mig og þá er hann í Vesturbænum, og biður mig um að koma aftur til að redda sér, þar sem hann var aftur orðinn rafmagnslaus! Ég sagði honum að ég gæti það ekki, þar sem ég ætti að mæta í vinnu eftir smá, en ég hefði að sjálfsögðu gert það ef ég væri ekki að fara að vinna. Sorry, Grétar minn.
Svo fór ég í vinnuna og þá komst ég að því að það væri verið að njósna um mann!
Þ.e.a.s. að myndavélakerfið uppi í vinnu væri tengt beint heim til forstjóra Bónus Video. Ég fór að hugsa og finnst þetta vera of mikil innrás inn á einkalíf. "Invasion of privacy" heitir þetta víst á ensku. Er þetta ekki ólöglegt? Þetta kom mér til að hugsa. Ég hef nefnilega heyrt að það megi taka video upptökur af vinnustöðum en einungis skoða þegar eitthvað gerist, en ekki vera með beina útsendingu heim til forstjóra fyrirtækisins. Er ég kannski bara að rugla eitthvað? Allavega, þetta er svolítið spúkí.
Allavega, maður grenslast kannski nánar um þetta mál. 
Núna er ég bara að fara að horfa á Lord Of War með Nicolas Cage í aðalhlutverki. Þetta á víst að vera voða spennandi mynd, en það er aldrei að vita. Ég er allavega farinn að horfa á þessa mynd og svo bara sofa og mæta snemma í skólann á morgun. Ætla að reyna að mæta kl 8 á föstudegi, sem hefur ekki tekist hingað til.
Ciao!

Athugasemdir (