Deila á Facebook
« Klipping og strípur - Þetta reglulega... | Aðalsíða | Afmæli Huldu og Erlu - Alzheimer? »

Flöskudagur?
Skrifað laugard. 18. mars 2006 - 19:56
athugasemdir skrifaðar - toppur / botn
Nei, ekki alveg flöskudagur þetta kvöld.

Ég byrjaði á því að fara til Jökuls í eitthvað chill. Ég, Grétar, Jökull, Helgi, Ingvar og Ívar vorum þar. Það var rosa gaman. Vorum á fullu að segja brandara og eitthvað. Svo fórum við niður í bæ. Ég tók Ingvar með mér, Grétar tók Helga með sér og Ívar fór á sínum bíl og fór að sækja eitthvað fólk.

Á leiðinni niður í bæ, fórum við á Pizza Hut, þar sem það var einhver sem sagði mér að Gugga og Beta væru þar, þannig við kíktum þar. Við keyrðum hringinn í kring en sáum engan inni, út af því að það var svo dimmt. Ég skutlaði Ingvari svo niður í bæ og fór svo á Esso planið og hitti þar Kamil og Danna. Svo fór Kamil að skutla Danna heim og á meðan fór ég bara á rúntinn. Gugga var alveg að farast úr forvitni af hverju ég hefði verið þarna á Pizza Hut. Svo bauð hún mér að kíkja. Ég fór þangað aftur og þá var fólk þarna inni! Ég tók ekki eftir því.

Svo vorum við þarna í smá tíma; ég, Gugga, Óli 3, Davíð, Biggi og Almar. Svo þegar allir voru að fara, fóru Gugga og Óli 3 að taka til á meðan ég beið bara eftir þeim. Svo eftir að þau voru búin að taka til, fórum við bara. Óli 3 keyrði bara heim sjálfur, en ég og Gugga fórum bara á smá rúnt á mínum bíl. Tókum einn bæjarrúnt og einn laugara, en ég var svo ógeðslega þreyttur, að við ákváðum bara að fara heim.

Svo núna rétt áðan var ég bara að vakna. Klukkan sirka 7. Alveg ótrúlegt hvað ég get sofið lengi. Gugga fór bara klukkan 1 í dag og kom Beta að sækja hana til að skutla Guggu að ná í bílinn sinn. Svo núna í kvöld er víst hörkudjamm. Er að fara að gera mig kláran fyrir afmælið hjá Huldu og Erlu og það verður sko fjör! Það verður hljómsveit að spila og auðvitað DJ, þannig þetta á eftir að verða mjög skrautlegt og auðvitað verður maður í glasi!

Allavega, ég er farinn að gera mig til fyrir hörkudjamm! Ég mun örugglega henda inn einhverjum myndum frá kvöldinu, en ég þekki svo fáa sem verða í þessu afmæli, að ég á örugglega ekkert eftir að þora að taka margar myndir.




Athugasemdir ():