Afmæli Huldu og Erlu - Alzheimer?
Skrifað sunnud. 19. mars 2006 - 16:49Ég get svo svarið það. Ég man eiginlega ekkert eftir gærkvöldinu, en það sem ég man, ætla ég að reyna að rifja upp.
Klukkan 10 í gærkvöldi, fór ég í sturtu og gerði mig kláran. Mér finnst mjög leiðinlegt að Alexander Aron hafi dottið út úr Idolinu. Eins og gaurinn söng nú vel. Einnig þegar ég og Hulda vorum í Idolinu, þá hleypti hann okkur fram fyrir sig í röðinni og hingað til höfum við alltaf kallað hann indæla tröllið. Allavega, ég stóð með honum í þessari hörðu keppni.
Eftir að ég var búinn að gera mig kláran, kom Grétar til mín. Við fórum svo í afmælið og þegar við komum, komu Erla og Hulda hlaupandi að okkur til að faðma okkur.
Við réttum þeim afmælisgjafirnar, sem voru tvær jarðaberja kampavínsflöskur. Svo settumst við Grétar niður. Þetta var nú ekki líflegt partý í byrjuninni. Ég hitti m.a.s. nokkra sem ég þekkti og bjóst ekki við að sjá þarna. Þar á meðal: Sg, Lalla, Svavar og einhverja fleiri.
Svo þegar það fór að líða á nóttina, kláraði ég kippuna mína og við fórum að dansa. Hljómsveitin Fóbía var að spila og verð ég nú bara að segja að þeir stóðu sig með ágætum. Svo var bara sett geisladisk á, þannig fólk byrjaði að dansa. Svo þegar partýið var alveg að fara að deyja, ákváðum við Grétar að fara. Við kvöddum fólkið og fórum svo.
Við keyrðum til Ingvars og skildum bílinn eftir þar. Við byrjuðum á því að labba frá Ingvari og inn á Glaumbar. Það var auðvitað ömurlegt þar. Glaumbar hefur minnkað mjög mikið í áliti hjá mér, þar sem það er aldrei nein stemmning þar! Svo reyna þeir að pumpa upp stemmninguna með því að vera með einhvern trúbador.
Nú er Sólon í uppáhaldi hjá mér. Við fórum út úr þessari ömurlegu stemmningu á Glaumbar og röltum á Subway, svo Grétar gæti fengið sér að borða. Þar hittum við Helga og Andra og voru þeir mjög hressir, þrátt fyrir að Helgi hafi verið allt of edrú.
Fyrir utan Subway hitti ég Jökul og Betu. Þau voru bara að rúnta.
Svo eftir að Grétar var búinn að fá sér í svanginn, röltum við á Café Cozy. Auðvitað var ég sá eini sem fór inn og svo þegar ég kom aftur út, voru þeir búnir að loka hliðinu, þannig ég hélt ég væri læstur inni.
Svo seinna kom Ásta, eigandi Café Cozy, og hleypti mér út. 
Við lentum í þvílíku böggi við dyraverðina á Dubliners. Grétar og Helgi fóru að dissa dyravörðinn svo mikið, sem var bara of fyndið!
Svo röltum við á Sólon. Þar hittum við Ívar og Gumma. Gummi splæsti á kallinn bjór. Takk, Gummi.
Svo fórum við bara að dansa. Við erum að tala um það að ég tók of mikið af myndum. Pabbi lánaði mér myndavélina sína, þannig ég gæti tekið almennilegar myndir af djamminu og sett á síðuna. 
Svo á Sólon labbaði ég upp að Helga, sem var á barnum í hörku samræðum við einhvern mann. Helgi sagðist ætla að lemja gaurinn og gaurinn sagðist ætla að lemja Helga á móti. Þetta var of fyndið, þeir gerðu ekkert, en í stað þess bauð gaurinn mér og Helga upp á tvö skot hvor.
Handboltaskot, bezt í heimi!
Ef þið farið á Sólon, pantið þá hjá Gumma handboltaskot. Þetta er of gott. Ég hef ekki hugmynd um hvað er í þessu, en það eru allavega margar blöndur af sterku áfengi og svo trópí eða eitthvað í lokin. Svo er sett eitthvað rautt í þetta til að fá flott lúkk á þetta. Þetta er mjög gott! 
Allavega, á þessum tímapunkti voru ég og Helgi orðnir svolítið fullir. Við fórum að rölta eitthvað niðri í bæ, á meðan Grétar fór að skutla Oddi, bróðir sínum, og Agnesi, kærustunni hans, heim. Helgi fór að bulla í fólki og byrjaði með: "Hey gemmér fimmu" og svo þegar gaurinn ætlaði að gefa honum fimmu, þá sagði hann: "Neiiii djók!" og fór svo að hlæja á fullu. Þetta gerði hann við óteljandi manns.
Skrítið að hann hafi ekki verið laminn þarna. 
Svo röltum við á Gaukinn. Þar fyrst byrjaði vesenið. Ég og Helgi vorum á dansgólfinu og þar var einhver sköllóttur harður nagli með tattoo út um allt. Þessi gaur var svona eins og Vin Diesel fyrir utan það að vera mikið renglulegri. Helgi byrjaði eitthvað að ýta í hann og gaurinn byrjaði þá að ýta á móti. Gaurinn gerði í því að pirra mig og Helga.
Svo seinna ákvað Helgi að berja hann. Hann hringdi í Grétar og Grétar kom strax. Svo eltum við gaurinn inn á klósettið á Gauknum. Þar var gaurinn inni á bás að pissa. Eftir að hann kom út af básnum, vorum við 4 þarna fyrir framan. Helgi labbar eitthvað upp að honum og spyr hann af hverju hann hafi verið að ýta í sig á dansgólfinu. Gaurinn segir bara að hann hafi bara verið að dansa og hafi óvart ýtt í hann, sem er kjaftæði.
Svo ýtti Helgi honum. Gaurinn stóð bara aftur upp. Svo ýtti Helgi honum aftur og þá tók gaurinn eitthvað í Helga. Ég tók þá utan um gaurinn og hélt honum, svo hann myndi ekki kýla Helga, en nei nei, þá komu dyraverðirnir og drógu Helga út.
Ingvar byrjaði þá að rífa kjaft við gaurinn og seinna komu dyraverðirnir og tóku eitthvað í mig. Ég öskraði þá á þá og spurði þá fyrir hvað þeir ætluðu að henda mér út. Váá hvað ég var brjálaður.
Svo fórum við bara fram aftur.
Svo fórum við bara aftur á dansgólfið. Þar var sköllótti gaurinn aftur. Ég man ekki alveg hvernig þetta fór en Helgi byrjaði eitthvað að pirra hann aftur, með því að dansa geðveikt utan í honum. Grétar fór þá og skipti sér að og þá kom einhver stelpa og hellti bjórnum sínum yfir Grétar, viljandi. Þannig Grétar snéri sér við og hrækti framan í hana!
Vááá, tekin!
Svo varð eitthvað vesen á milli Helga og Dóra, sem ég þekkti. Ég fékk bara Dóra til þess að róa sig, og gerði hann það. Svo þegar Dóri var að fara, kallaði helgi á eftir honum: "Já farðu bara, ljóta gerpi" eða eitthvað, og þá ætlaði Dóri að fara aftur í hann, en ég talaði við hann, þannig það gerðist ekkert. Ég er svoddan peacemaker! 
Svo ákváðum við bara að fara heim. Ég, Grétar og Helgi fórum bara að bílnum. Agnes og Oddur komust náttúrulega ekkert heim, þegar Grétar ætlaði að skutla þeim fyrr um kvöldið, þar sem Grétar þurfti að snúa við til þess að bjarga Helga úr vandræðunum, þannig þau voru stödd í leigubílaröðinni. Grétar hringdi í þau og bað þau um að koma en þau voru þá komin inn í leigubílinn. Oddur sagði þá við leigubílstjórann: "Hey, ég gleymdi símanum. Ég þarf að ná í hann!" og svo fóru þau bæði út úr leigubílnum. Leigubílstjórinn var ekki sáttur.
Svo komu þau inn í bíl til okkar.
Við skutluðum Helga fyrst heim og svo Oddi og Agnesi, og svo fórum við Grétar á Subway, og ég fékk mér að borða. Ég ætlaði að fá mér Hlölla niðri í bæ, en fólkið nennti ekki að bíða á meðan.
Svo eftir Subway og kók, fórum við bara heim. Ég fór fyrst til Guggu til þess að athuga hvort hún hefði skilið eftir opið handa mér. Það var læst, þannig við keyrðum bara heim, spjölluðum smá stund úti í bíl og svo fór ég bara inn að sofa.
Núna fyrir sirka klukkutíma var ég að vakna. Ég á varla orð. Ég held þetta sé í fyrsta skipti í langan tíma sem ég er ekki þunnur!
Yndislegt þegar maður er ekki þunnur.
Núna er ég bara að fara að fá mér að borða og svo þarf ég að læra undir eitthvað próf. Ég man bara ekki í hvaða fagi.
En allavega, þessi helgi var skítsæmileg.
Ég vil bara þakka öllum fyrir fínt djamm, þar á meðal Kamil vini mínum, sem var svo góður að koma smá að djamma. 
Myndirnar eru komnar inn! Þær eru hérna!

Athugasemdir (