Tekinn af löggunni - Ég er saklaus!
Skrifað þriðjud. 21. mars 2006 - 00:15Jæja, ég fór í kvöld með Andra og Kamil og tók myndir af bílunum okkar.
Á leiðinni heim var ég að keyra yfir Gullinbrúna. Ég var í MESTA LAGI á 85-87, þar sem ég kíkti á mælinn þegar ég sá lögguna. Þegar ég kom í bílinn til þeirra, sá ég á skjánum þeirra 108. Það stenst engan veginn! Ég var sko ekki á þeim hraða! Maja frænka var fyrir aftan mig og 2 aðrir vinir hennar og geta þau staðfest að ég hafi ekki verið á svona miklum hraða, þar sem þau voru á 80 og ég kannski aðeins meiri hraða. Þetta er fokking bull!
Ég harðneitaði þessari ákæru og bað þá um að skrifa í athugasemdir: "Segist hafa verið á 85-87". Allavega, ég er alveg tilbúinn til að fara með þetta lengra. En þýðir það eitthvað?
Ég hef ekki brotið af mér í 2 ár sirka og nú gerist þetta. Æðislegt! 
Nánar hér.
Ætli þetta séu ekki 4 punktar og 40.000 kr. sekt? Þar fór 50.000 kallinn.
Hann var reyndar löngu farinn í að borga upp í utanlandsferðina mína. 
Ég er mjög bitur núna og þarf frið.

Athugasemdir (